Úlfurinn át þá alla Jónas Sen skrifar 27. október 2026 07:03 Queens of the Stone Age trylltu lýðinn í Höllinni. Í ævintýrinu um úlfinn og kiðlingana sjö étur úlfurinn krít til að gera röddina mjúka og tælandi, svo kiðlingarnir opni fyrir honum. Josh Homme, söngvari Queens of the Stone Age, virðist hafa gert hið sama áður en hann steig á svið í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið. Rödd hans var svo hlý og hljómfögur að hann hefði hæglega getað verið forsöngvari í kirkjukór.
En í þetta sinn hafði hann annað í hyggju. Fyrir framan hann voru um fimm þúsund kiðlingar og hann ætlaði að éta þá alla. Það þurfti ekki einu sinni að blekkja þá. Þeir höfðu borgað fyrir að vera í matinn. Queens of the Stone Age. Laugardalshöllin laugardaginn 24. október Hugsunarlaus trommuheili Áður en úlfurinn mætti til leiks hafði Virgin Orchestra hitað upp. Fyrst voru þrjú á sviðinu, söngkona, sellóleikari og rafgítarleikari, en á bak við þau var illa blandaður undirleikur af upptöku. Þar á meðal var trommuheili sem hafði greinilega ekki fengið mikið að hugsa um. Útkoman minnti á karaókí þar sem enginn hafði almennilega stjórn á græjunum. Hugsanlega hefði þurft að gefa hljómsveitinni lengra hljóðpróf fyrir tónleikana. Þegar fleiri strengjaleikarar bættust við lifnaði hins vegar yfir tónlistinni. Hljóðheimurinn varð meira sannfærandi og lagasmíðarnar tóku óvænta stefnu, voru ekki eins fyrirsjáanlegar og í fyrstu. Virgin Orchestra er efnileg hljómsveit, en á enn nokkuð ólært. Virgin Orchestra heillaði ekki gagnrýnanda. Mannætuveisla Queens of the Stone Age gekk síðar á svið við mikil fagnaðarlæti og, furðulegt nokk, valsinn eftir Basil Poledouris úr mannætuveislunni í Conan the Barbarian. Ég hef ekki séð myndina í þrjátíu ár, en kvikmyndatónlist límist við heilann á mér. Í huganum flutu höfuðin og hendurnar í grænni súpu í stórum potti. Borðið var dekkað. Og þar var aldeilis búið að taka til. Hljóðið hjá hljómsveitinni var svo hreint að heilbrigðiseftirlitið hefði getað veitt því sérstaka viðurkenningu. Hver einasta rödd átti sinn stað í hljóðmyndinni. Gítararnir héldu sig á sínu svæði, bassinn á sínu, hljómborðið á sínu og trommurnar á sínu. Ekkert lak yfir í næstu rödd, og söngurinn sveif yfir öllu saman. Öguð grimmd Þetta þýddi þó ekki að tónlistin væri fáguð eða prúðmannleg. Þvert á móti var hún oft grimmileg, hávær og ágeng. En undir öllu bjó agi. Hljómsveitin var eins og ein lífvera þar sem hver limur vissi hvað hinir voru að gera, án þess að nokkurn tíma yrði vart við vélræna tilfinningu. Hljómsveitarröddin var hvöss og stundum ógnandi, en söngrödd Homme var furðulega mjúk í samanburði. Hann varð sjaldan að öskra til að halda athygli áheyrenda. Baritóninn hans varð enn áhrifameiri vegna þess hve óvægin tónlistin í kringum hann var. Úlfurinn þurfti ekki að brjóta upp dyrnar, bara að opna munninn. Ættarmót Hvert lag hvíldi á sinni eigin hugmynd, oft einfaldri hendingu sem var endurtekin aftur og aftur þar til hún varð að þráhyggju. Ættarsvipurinn leyndi sér ekki, en engar tvær þráhyggjur voru eins. Það gilti jafnt um tvö lög af væntanlegri plötu, „Insignificant Other“ og „Where the Goth Girls At?“ og gamla kunningja á borð við „Little Sister“, „Go With the Flow“ og „No One Knows“. Platan heitir Perfecth og kemur út 30. október. Titillinn er skemmtileg afbökun á orðinu perfect, fullkominn, og á ágætlega við það sem fór fram í Höllinni. Þar var nákvæmnin notuð til að skapa tónlist sem virtist stundum við það að fara úr böndunum. Þetta var úthugsaður sóðaskapur. Fögnuðu dauðanum Í „Make It Wit Chu“ tóku áhorfendur sjálfir við viðlaginu og sungu af miklum móð. Þar með var karaókíið komið aftur, nema nú var undirleikurinn fyrsta flokks. Homme þurfti ekki annað en að leyfa salnum að halda áfram. Og svo var það „A Song for the Dead“. Það er ekki á hverjum degi sem maður sér þúsundir manna fagna dauðanum af slíkri innlifun. Í laginu eru þagnir sem hefðu getað orðið að grafarþögn. Það urðu þær aldrei, því kiðlingarnir fylltu þær jafnóðum með háværum öskrum, eða öllu heldur jarmi. Hljómsveitin bjó til eyðurnar og salurinn sá um sóðaskapinn. Loks verður að nefna ljósasýninguna sem var aldrei eins frá einu lagi til annars. Hún minnti á málverk eftir Jackson Pollock, þar sem málningunni virðist skvett af handahófi en hver sletta lendir á sínum stað. Verkefnalaus tónlistargagnrýnandi Ég hafði komið í Höllina til að gegna starfi mínu sem tónlistargagnrýnandi. Í því felst meðal annars að finna að því sem betur mætti fara. Virgin Orchestra hafði verið svo vinsamleg að útvega mér nokkur verkefni. En Queens of the Stone Age gerði mér lífið verulega leitt. Það var nánast ekkert hægt að kvarta yfir. Þetta er auðvitað alveg óþolandi. Úlfurinn át okkur einfaldlega öll. Niðurstaða: Hjá Queens of the Stone Age fór ekkert úrskeiðis, nema starf gagnrýnandans. Þegar ég kom út úr Laugardalshöllinni var tunglið fullt. Ég spangólaði.
Gagnrýni Jónasar Sen Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Fleiri fréttir Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira