Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. október 2026 08:49 Lögreglufélag Vestfjarða lýsir áhyggjum af því að með fyrirætlunum dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta færist stjórnun og ákvarðanataka um fjölda lögreglumanna, fjármuni og forgangsröðun verkefna fjær starfssvæðinu. Vísir/Vilhelm Lögreglufélag Vestfjarða lýsir áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú og telur brýnt að endurskoða fyrirætlanir dómsmálaráðherra. Það telur það ekki séð hvernig breytingarnar muni bæta löggæslu á landsbyggðinni og tryggja öryggi. „
Vestfirðir eru víðfeðmt og krefjandi starfssvæði þar sem miklar vegalengdir, erfiðar samgöngur og veðurfar gera oft og tíðum miklar og sérhæfðar kröfur til löggæslu,“ segir í ályktun Lögreglufélags Vestfjarða sem undirrituð var í gær. Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir dómsmálaráðherra kynnti breytingarnar upprunalega í vor en frumvarpið verður lagt fram í nóvember. Áformað er að fækka lögregluembættum um sex talsins og hefur ráðherra sagt skýrt að áformin feli ekki í sér fækkun lögreglustöðva eða lögreglumanna. Þvert á móti sé ætlunin að fjölga lögreglumönnum og þá eigi breytingarnar að styðja betur við störf lögreglu í landinu. Sjá einnig: Lögregluembættum fækkað verulega Lögreglufélag Vestfjarða taki undir mikilvægi þess að efla faglega getu og sérhæfingu lögreglu en telji ekki séð hvernig breytingarnar muni bæta löggæslu á landsbyggðinni og tryggja öryggi lögreglumanna og almennings. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra í sameiningu lögregluembætta en áður stóð til.Vísir/Bjarni Þá lýsi félagið áhyggjum af því að með sameiningu embætta færist stjórnun og ákvarðanataka fjær starfssvæðinu og jafnframt vakni spurningar um hvernig eigi að tryggja skjótan og fullnægjandi stuðnng þegar alvarleg eða umfangsmikil atvik komi upp. Sérstakar áhyggjur hefur félagið af því að sameining embætta leiði til fækkunar lögreglumanna á vöktum og skertrar þjónustu á afskekktum svæðum. Sjá einnig: Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla „Slík þróun gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi almennings sem og lögreglumanna þar sem aðstoð getur verið langt undan. Er slíkt ekki til þess fallið að styrkja lögregluna með neinum hætti né auka öryggi borgaranna,“ segir í ályktun félagsins. Félagið leggi áherslu á að raunveruleg efling lögreglunnar felist fyrst og fremst í fjölgun lögreglumanna og auknum fjármunum til löggæslu fremur en ekki stækkun embætta einnar og sér.
Lögreglan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira