FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. október 2026 08:35 Gils Gíslason er einkar sprettharður ungur maður. Vísir/Sigurjón Gils Gíslason mældist á 37,5 kílómetra hraða þegar hann tók um 40 metra sprett í leik við Víking í Kaplakrika fyrr í sumar. Það er hærri tala en þeir sneggstu í Evrópu.
Sé litið yfir hraðasta sprett leikmanna í stærstu fimm deildum Evrópu á síðustu leiktíð (England, Frakkland, Ítalía, Spánn, Þýskaland) var enginn sem náði svo hröðum spretti. Klippa: FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Einn mesti íþróttmaður sem ég hef þjálfað“ Hinn 19 ára gamli Gils hefur ekki mikið fyrir hraðanum að eigin sögn. Hvernig verður maður svona fljótur? „Úff, ég veit það ekki. Góð gen eða eitthvað,“ segir Gils og hlær. „Ég held þetta renni bara í fjölskyldunni. Mamma og afi voru mjög fljót og systkini hennar. Ætli ég hafi ekki fengið bestu genin þaðan,“ segir hann enn fremur. Á pari við Íslandsmeistara í spretthlaupum Kristófer Þorgrímsson, Íslandsmeistari í 200 metra hlaupi og einn allra sneggsti maður landsins, er jafnframt styrktarþjálfari karlaliðs FH í fótbolta og heldur utan um GPS-mælingar sem mældu þennan svakalega hraða Gils í leiknum við Víking. „Hann er bara rosalegur. Þetta er einn mesti íþróttamaður sem ég hef nokkurn tímann þjálfað. Hann er náttúrulega hraður og sterkur,“ segir Kristófer. Kristófer Þorgrímsson, Íslandsmeistari í 200 metra hlaupi og styrktarþjálfari fótboltaliðs FH.Vísir/Sigurjón Það fylgir þá sögunni að Gils hefur ekki æft frjálsar íþróttir eða æft spretthraða sérstsaklega. „Þetta er bara svo náttúrulegt. Ég hef eiginlega ekki þurft að kenna honum neitt. Það er bara að gera hann aðeins betri í því sem hann gerir. Annars er þetta bara meðfætt,“ „Ég tók þessi GPS-hlaupavesti sem þeir nota um daginn og ég held að ég hafi rétt svo farið yfir Gils. Og ég á að vera einn af hröðustu mönnum landsins – sem segir sitt um hversu hraður hann er,“ segir Kristófer, sem líkt og áður segir er Íslandsmeistari í spretthlaupum. Sneggri en stjörnurnar Sneggstur var Jackson Tchatchoua, leikmaður Wolves, sem náði 37,3 km/h spretti og næstur var Oliver Burke í RB Leipzig sem náði 37,0. Aðrir leikmenn náðu ekki upp í 37 kílómetra hraðann á spretti síðasta vetur. Vinicius Junior náði ekki sama hraða og Gils.EPA Á meðal manna sem náðu ekki upp í 37 kílómetra hraðann eru til að mynda sprettharðir menn á við Jeremie Frimpong (36,18), Erling Haaland (36,20), Anthony Elanga (36,35) og Vinicius Junior (36,42) sem allir eru fyrir neðan Gils. Er það ekkert klikkað? „Jú, þegar maður pælir í því. En svo er maður alltaf að clocka nálægt þessu svo maður bara venst því bara meira og meira.“ Ertu þá fljótastur í Evrópu? „Nei, það held ég ekki,“ segir Gils og hlær. Klár ef Jói Kalli segir já Frjálsíþróttadeild FH, þar á meðal Kristófer, hefur plokkað aðeins í Gils og stefnan að reyna að fá Gils til að taka þátt á sprettmóti í vetur. „Ég ætla nú ekki að stela honum úr fótboltanum, hann er það góður í fótbolta. En það væri mjög gaman að sjá hann taka allavega eitt spretthlaup og ég er viss um að hann er í topp þrjú í spretthlaupi á Íslandi,“ segir Kristófer. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, þarf að gefa leyfi svo Gils geti reynt við eins og eitt sprettmót í vetur.Vísir/Hulda Margrét „Eigum við ekki bara að sjá hvað Jói Kalli (Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH) segir, hvort ég fái að prófa það eða ekki,“ segir Gils um hugmyndina. Þannig að ef að Jói Kalli segir já ertu klár? „Já, maður er alltaf klár.“
FH Besta deild karla Frjálsar íþróttir Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Sjá meira