Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Árni Sæberg skrifar 22. október 2026 14:07 Maðurinn var kominn í Leifsstöð og á leið úr landi þegar laganna verðir höfðu loks uppi á honum. Vísir/Vilhelm Erlendur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þar sem talið er að hann myndi ella reyna að koma sér undan réttvísinni. Hann var ákærður í fyrra fyrir að hafa nauðgað andlega fatlaðri konu árið 2022 en eftir útgáfu ákæru fannst hann hvergi, þangað til að hann var gripinn í Leifsstöð á sunnudaginn. Hann hefur þegar játað nauðgunina og borið fyrir sig að hafa misst rökhugsun og ekki getað hætt samræði við konuna þrátt fyrir að hún biði hann um það.
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð Héraðssaksóknara sé atvikum lýst sem svo að embættið hafi höfðað mál á hendur manninum í nóvember í fyrra þar sem honum sé gefin að sök nauðgun, með því að hafa í febrúar árið 2022 haft samræði við konu á heimili hennar án hennar samþykkis og með því að beita hana ólögmætri nauðung. Hann hafi kysst andlit konunnar, sogið háls hennar og geirvörtur, dregið niður um hana buxurnar og haft samræði við hana án þess að skeyta því engu að hún segði honum ítrekað að hún vildi ekki hafa við hann samræði. Hann hafi nýtt sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart konunni, sem hafi ekki getað spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar. „Ákærði hefur í skýrslutöku hjá lögreglu játað sök að einhverju leyti þar sem hann kannaðist við að hafa haft samræði við brotaþola án hennar samþykkis þar sem hann hafi misst rökhugsun og ekki getað stoppað þrátt fyrir beiðni hennar þar um.“ Kom í ljós að fleiri vildu finna hann Þá segir að eftir útgáfu ákæru og eftir að dómari gaf út fyrirkall hafi verið gerðar ítrekaðar tilraunir til þess að ná tali af manninum en án árangurs. Þá hafi verið haft samband við verjanda hans, sem hafi kveðist ekkert hafa heyrt í manninum og telja hann vera erlendis. „Við leitina að ákærða kom í ljós að heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra hafði einnig gert tilraunir til þess að hafa uppi á honum þar sem hann hafi verið í ólögmætri dvöl á Íslandi og lá fyrir ákvörðun um brottvísun hans af landinu. Hafi starfsmenn Ríkislögreglustjóra haft uppi á ákærða í síma um miðbik desembermánaðar 2025 þar sem hann kvaðst vera staddur á [afmáð] hvar hann hafi verið undanfarna sex mánuði en grunur lék á að hann væri enn hér á landi.“ Af þeim sökum hafi heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra óskað eftir upplýsingum frá farþegaupplýsingadeild Ríkislögreglustjóra um ferðir mannsins til og frá Íslandi á tímabilinu 28. maí 2025 til 16. desember sama árs, tengdum símanúmeri mannsins á Íslandi. Þá hafi verið tekið fram að þar sem vegabréf hans væri í vörslum lögreglu væru líkur á því að hann notaðist við önnur skilríki en sín eigin og þá hugsanlega bróður síns, sem búsettur sé á Íslandi. Við leitina hafi fundist þrjár flugferðir til og frá landinu á tímabilinu, öll í nafni bróður mannsins og það nýjasta þann 20. nóvember 2025, eða viku eftir útgáfu ákærunnar. Flugbókunin hafi verið tengd netfangi ákærða og þar af leiðandi talið að þar hafi verið um að ræða manninn, sem ferðaðist undir fölsku flaggi. Af þessum sökum hafi ekki tekist að hafa uppi á manninum hingað til í því skyni að birta fyrir honum fyrirkall, ákæru og bótakröfu. Gekkst undir tveimur nöfnum og ferðaðist á því þriðja Í úrskurðinum segir enn fremur að ákæran fyrir nauðgun hafi verið gefin út í því nafni sem maðurinn gaf upp þegar hann sótti um alþjóðlega vernd hér á landi árið 2018. Þá hafi verið teknar ljósmyndir og fingraför af manninum vegna umsóknarinnar. Í byrjun árs 2023 hafi skilríkjarannsóknastofu Lögreglunnar á Suðurnesjum borist beiðni frá Útlendingastofnun um að taka til skoðunar vegabréf og skjöl mannsins frá [afmáð], með tilliti til hugsanlegrar fölsunar. Var andlitsmyndin frá árinu 2018 hafi verið borin saman við andlitsmyndina í [afmáð] vegabréfinu og niðurstaða rannsóknarinnar verið sú að allar líkur væru á því að um sama einstakling væri að ræða og að rétt nafn hans væri annað en það sem hann gaf upp árið 2018. Maðurinn hafi ekki mætt við þingfestingu málsins vegna ákærunnar þann 7. janúar þessa árs og dómari hafi því gefið út handtökuskipun í sama þinghaldi. Maðurinn hafi í kjölfarið verið settur í eftirlýsingu. Á sunnudaginn síðastliðinn hafi lögreglumenn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar haft afskipti af manni sem framvísaði [afmáð] vegabréfi ánöfnuðu þriðja nafninu. Lögregla hafi óskað eftir því að tæknideild lögreglu framkvæmdi samanburð á fingraförum þess manns og þeim fingraförum sem tekin voru af manninum í málinu sem hér um ræðir og niðurstaða þeirrar rannsóknar hafi verið að fingraförin væru af sama manninum. „Er því ljóst að ákærði í málinu hefur gengið undir tveimur nöfnum og líklega ferðast á því þriðja, en hann framvísaði [afmáð] dvalarleyfi við komuna hingað til lands. Ákærði er nú í haldi lögreglu.“ Í niðurstöðu úrskurðar héraðsdóms, sem staðfest var í Landsrétti, segir að telja verði nægilega leitt í ljós að maðurinn myndi reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málsókn meðan mál hans er til meðferðar. Því væri skilyrði gæsluvarðhalds uppfyllt og hann skyldi sæta slíku til 16. nóvember næstkomandi.
Kynferðisofbeldi Hælisleitendur Dómsmál Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Sjá meira