Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Bjarki Sigurðsson skrifar 22. október 2026 06:56 Leigumarkaður hefur kólnað undanfarið. Vísir/Vilhelm Leiguverð heldur ekki í við verðbólgu samkvæmt nýrri greiningu HMS og leiguverð því að lækka að raunvirði. Þó virðast fleiri festast á leigumarkaði og mikil óvissa er framundan á fasteignamarkaði, meðal annars vegna vænts samdráttar í íbúðafjárfestingu.
Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir október 2026. Þar segir að fasteignamarkaðurinn hafi verið daufur í lok sumars og þurfi að leita aftur til ársins 2014 til að finna jafnfáa þinglýsta kaupsamninga í ágústmánuði. Þó mátti greina nokkra viðspyrnu í september þó virknin að sé enn lítil miðað við síðustu ár. „Framboð nýrra íbúða á sölu hefur verið nokkuð stöðugt frá áramótum, þar sem dregið hefur úr uppbyggingu nýrra íbúða á sama tíma og minna er selt af þeim. Öðrum íbúðum á sölu fjölgar hins vegar ört á milli mánaða eftir því sem fasteignamarkaðurinn hefur kólnað,“ segir í tilkynningu á vef HMS. Fleiri festast á leigumarkaði Leigumarkaðurinn ber einnig merki kólnunar þar sem leiguverð heldur ekki í við verðbólgu. Framboð leiguíbúða virðist hafa aukist síðustu misseri en þrátt fyrir það bendir leigumarkaðskönnun HMS til þess að fleiri séu að festast á leigumarkaði en áður. „Nýtt frumvarp um leigubremsu myndi takmarka reglubundnar leiguverðshækkanir á samningstíma við vísitölu neysluverðs og tíðni hækkana við tólfta hvern mánuð. Ýmsar undanþágur yrðu þó áfram til staðar í húsaleigulögum sem heimila breytingar á leigu vegna breyttra markaðsaðstæðna, rekstrarkostnaðar eða fjármagnskostnaðar,“ segir í tilkynningunni. Eigið fé fjölskyldna eykst Lánamarkaðurinn var umfangsminni í ágúst en mánuðinn á undan og ásókn í verðtryggð lán eykst á ný. Fastir vextir eru enn allsráðandi líkt og þeir hafa verið frá vaxtadómunum svokölluðu í október 2025. „Eigið fé fjölskyldna í fasteignum hefur að meðaltali aukist frá því í fyrra, þar sem vextir hafa hækkað og dregið hefur úr skuldsetningu. Þó er skuldsetning mismikil eftir fjölskyldugerðum og bera einstæðir foreldrar þyngstu skuldabyrðarnar,“ segir í tilkynningunni. Óvissa í framtíðarþróuninni Byggingarmarkaðurinn hefur dregist saman þar sem fjármálafyrirtæki veita færri ný útlán til byggingarfyrirtækja og spá greiningardeildir allra bankanna samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár. Þær greinir þó á um framtíðarþróun íbúðafjárfestingar og því er mikil óvissa í þeim efnum. „Stærðardreifing íbúða sem eru í byggingu er í samræmi við eftirspurn síðustu ára, en minnstu og stærstu íbúðirnar hafa selst betur en aðrar. Meirihluti óseldra nýrra íbúða er á stærðarbilinu 80-120 fermetrar og í stórum fjölbýlishúsum,“ segir í tilkynningunni.
Neytendur Leigumarkaður Fasteignamarkaður Efnahagsmál Fjármál heimilisins Lánamál Húsnæðismál Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Sjá meira