Innlent

Ung­menni gripin við inn­brot

Smári Jökull Jónsson skrifar
Fjögur ungmenni undir lögaldri voru gripin við innbrot.
Fjögur ungmenni undir lögaldri voru gripin við innbrot. Vísir/Einar

Tilkynnt var um fjögur ungmenni að brjótast inn í húsnæði en þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Öll ungmennin eru undir lögaldri og var haft samband við foreldra þeirra í kjölfarið.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem greint er frá því helsta sem kom upp frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt. Þar er sagt að lögregla hafi farið á vettvang eftir að tilkynnt var um fjögur ungmenni að brjótast inn. Þegar í ljós kom að öll ungmennin voru undir lögaldri var hringt í foreldra þeirra.

Þá var einnig tilkynnt um tvo aðila í slagsmálum, fór lögregla á vettvang og var slagsmálunum hætt.

Á svæði lögreglustöðvar fjögur fékk lögreglan tilkynningu um þjófnað í matvöruverslun og á svæði lögreglustöðvar þrjú, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, var tilkynnt um aðila í bifreið sem var að gefa börnum pening fyrir utan skóla.

Fór lögregla á vettvang en var bifreiðin hvergi sjáanleg. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×