Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar 21. október 2026 10:02 Flest viljum við að börnin okkar finni eitthvað sem þau hafa áhuga á, njóti sín í námi og finni starf sem hentar þeim þegar fram í sækir. En hvað gerist þegar þau vita ekki hvað þau vilja? Þegar þau efast um eigin getu, finna sig ekki í skólanum eða sjá ekki tilganginn með því að halda áfram? Stjórnvöld tala um mikilvægi þess að börn og ungmenni fái stuðning, að dregið verði úr brotthvarfi úr námi og að öll fái tækifæri til að nýta hæfileika sína. En eitt mikilvægt atriði fær ekki alltaf þá athygli sem það á skilið: aðgangur að náms- og starfsráðgjöf. Nemendur í grunn- og framhaldsskólum eiga lögbundinn rétt á náms- og starfsráðgjöf. Samt þarf að spyrja hvort sá réttur sé tryggður í raun og veru. Því réttindi sem standa í lögum en eru ekki aðgengileg öllum eru ekki þau réttindi sem við ættum að sætta okkur við. Þetta snýst ekki bara um að velja námsbraut eða ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór. Þetta snýst um að þekkja styrkleika sína, finna leiðir þegar á móti blæs og hafa einhvern til að leita til þegar framtíðin virðist óljós. Við eigum sérfræðingana. Náms- og starfsráðgjafar eru sérmenntað fagfólk sem styðja alla aldurshópa við að taka upplýstar ákvarðanir um nám og störf, takast á við hindranir og finna raunhæfar leiðir áfram. Starfsheitið er lögverndað, en það eitt og sér tryggir ekki að öll fái þá þjónustu sem lög gera ráð fyrir. Það þarf að fylgja réttindunum eftir í framkvæmd, með skýrri ábyrgð og raunhæfum forsendum til að veita þjónustuna. Auðvitað eru áskoranir í rekstri skóla og opinberrar þjónustu þar sem mönnun og fjármagn setja stjórnendum skorður. En þá þarf að ræða hvernig tryggja eigi lögbundin réttindi, ekki láta þau verða undir í daglegum rekstri. Réttur barns til náms- og starfsráðgjafar á ekki að ráðast af því í hvaða skóla það gengur. Þetta snýst líka um framtíð atvinnulífsins. Störf breytast, ný færni verður mikilvæg og sífellt fleiri þurfa að endurmeta stöðu sína, bæta við sig þekkingu eða hefja nýtt nám á fullorðinsárum. Atvinnustefna Íslands til 2035 leggur áherslu á færniþróun og að menntun þróist í takt við þarfir framtíðarinnar. Til að ná þeim markmiðum þarf fólk stuðning til að finna sína leið, halda áfram þegar á móti blæs og bregðast við breytingum. Náms- og starfsráðgjöf á því ekki aðeins erindi við börn og ungmenni. Hún er mikilvæg alla ævi. Tækni og gervigreind geta veitt upplýsingar um nám og störf, en þær koma ekki í stað faglegs samtals þar sem hlustað er, aðstæður metnar og styrkleikar dregnir fram. Þess vegna þurfa náms- og starfsráðgjafar að koma að borðinu þegar stjórnvöld móta stefnu um menntun, ungmenni, færniþróun og framtíð vinnumarkaðarins. Ekki aðeins eftir að ákvarðanir hafa verið teknar, heldur frá upphafi. Ég kalla eftir því að stjórnvöld tryggi að lögbundnum rétti nemenda sé fylgt eftir í framkvæmd og nýti sérþekkingu náms- og starfsráðgjafa markvisst í stefnumótun. Við eigum sérfræðingana. Við höfum lögin. Nú er kominn tími til að fylgja þeim eftir. Þetta snýst um tækifæri fólks, framtíð barna okkar og samfélags sem vill að öll geti fundið sína leið. Höfundur er formaður Félags náms- og starfsráðgjafa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun