Skoðun

Skaða­bætur frá síðustu öld

Hópur lögmanna skrifar

Hvað hefði ungur námsmaður getað unnið sér inn um ævina ef hann hefði ekki lent í umferðarslysi? Hæstiréttur þurfti að svara þeirri spurningu með dómi sem kveðinn var upp síðastliðinn miðvikudag í máli nr. 4/2026. Ágreiningur námsmannsins og vátryggingafélagsins snerist um líklegar framtíðartekjur námsmannsins, en mat á þeim getur skipt sköpum fyrir fjárhæð skaðabóta.

Það vakti athygli okkar undirritaðra lögmanna að í dómi Hæstaréttar, sem og í sératkvæði tveggja dómara, er sérstaklega vísað til þess að skaðabótalög séu úrelt. Lögin tryggja ekki lengur ýmsum hópum tjónþola, svo sem námsmönnum, börnum og heimavinnandi fólki, fullar bætur fyrir líkamstjón sitt. Enn athyglisverðara er að Hæstiréttur bendir sérstaklega á að Alþingi hafi ekki brugðist við þessari þróun með því að breyta skaðabótalögum. Afleiðing þess kann að vera sú að stjórnarskrárvarinn réttur tjónþolans til skaðabóta sé ekki tryggður.

Að okkar mati eru skilaboð Hæstaréttar skýr: Alþingi verður að bregðast við og færa skaðabótalög til nútímans.

Þetta er ekki nýtt ákall. Árið 2018 lagði Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, fram frumvarp sem fól meðal annars í sér breytingar á því ákvæði skaðabótalaga sem var til umfjöllunar hjá Hæstarétti, og reyndar fleirum. Frumvarpið náði þó ekki lengra en til fyrstu umræðu á þingi. Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og þáverandi félagi í Flokki fólksins, lagði fimm sinnum fram tillögur í formi frumvarps um breytingar á skaðabótalögum en án árangurs. Það var áður en flokkurinn komst í ríkisstjórn.

Það verður ekki lengur undan því komist að endurskoða skaðabótalög. Sú uppfærsla er á höndum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Í ráðuneyti hennar liggur nú þegar fyrir uppfært frumvarp um breytingar á skaðabótalögum frá árinu 2022 sem auðvelt er að dusta rykið af. Við skorum á dómsmálaráðherra að bregðast við skýrum skilaboðum Hæstaréttar og hefur bréf þess efnis verið sent henni. Tjónþolar eiga ekki að þurfa að bíða lengur eftir lögum sem tryggja þeim fullar bætur. Skaðabótalög eiga enda að endurspegla samfélagið í dag, ekki samfélag síðustu aldar.

Agnar Þór Guðmundsson lögmaður

Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður

Björgvin Þórðarson lögmaður

Bryndís Gyða Michelsen lögmaður

Elimar Hauksson lögmaður

Erling Daði Emilsson lögmaður

Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður

Haukur Freyr Axelsson lögmaður

Helgi Birgisson lögmaður

Hörður Þór Jóhannsson lögmaður

Ívar Þór Jóhannsson lögmaður

Kristján B. Thorlacius lögmaður

Marlena Piekarska lögmaður

Óðinn Elísson lögmaður

Óðinn Ingi Þórarinsson lögmaður

S. Sif Thorlacius lögmaður

Styrmir Gunnarsson lögmaður

Sveinbjörn Claessen lögmaður

Tinna Björk Gunnarsdóttir lögmaður




Skoðun

Sjá meira


×