Fótbolti

Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja

Andri Broddason skrifar
Mikael Neville Anderson og félagar í AGF geta ekki spilað á sínum eigin heimavelli í Sambandsdeild Evrópu.
Mikael Neville Anderson og félagar í AGF geta ekki spilað á sínum eigin heimavelli í Sambandsdeild Evrópu. Mikolaj Barbanell/SOPA Images/LightRocket via Getty Images

Mikil áskorun getur verið fyrir lið frá smærri þjóðum að spila í sterkustu deildum í Evrópu í fótbolta. Á Cepheus Park í Danmörku verða tveir leikir spilaðir með sólarhrings millibili og hefur vallarvörðurinn því nóg að gera milli leikja.

Ekki eru jafn margir gervigrasvellir í Danmörku og eru á Íslandi þar sem aðeins mildara veðurfar er nýtt til þess að hafa gras á langflestum keppnisvöllum. Grasvelli fylgir þó mikið viðhald og þegar leikir eru spilaðir með litlu millibili þurfa vallarstarfsmenn að vinna á næturnar til þess að gera völlinn kláran.

Á fimmtudaginn taka dönsku meistararnir AGF á móti Egnatia í Sambandsdeild Evrópu. Leikurinn verður spilaður á Cepheus Park sem er heimavöllur Randers FC en heimavöllur AGF hefur ekki fengið samþykki frá UEFA, evrópska knattspyrnusambandinu, fyrir að vera leikhæfur í Evrópukeppnum.

Daginn eftir tekur Randers FC á móti Brøndby IF í dönsku úrvalsdeildinni og þarf völlurinn að vera klár fyrir þann leik. Það verður starfsmaður að vinna á vellinum alla nóttina og á mannlegu tímunum munu margir hjálpast að við að gera völlinn kláran.

Veðurfar getur gert það mun erfiðara fyrir vallarstarfsmennina þar sem síðustu daga hefur verið næturfrost og leggst þá gras vallarins í dvala. Þrátt fyrir að mikil vinna fari í að gera völlinn kláran á stuttum tíma þá eru vallarstarfsmennirnir bjartsýnir á að ná því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×