Skoðun

Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli!

Alma D. Möller skrifar

Alþjóðlegi endurlífgunardagurinn er í dag, 16. október. Sá dagur minnir okkur á þær aðstæður sem upp geta komið hvenær sem er og gera ekki boð á undan sér – og um nauðsyn þess að kunna að bregðast við, þar sem hver mínúta skiptir máli.

Rauði krossinn á Íslandi (RKÍ) veitir ár hvert viðurkenningu til einstaklings eða einstaklinga sem hafa veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt og bjargað lífi. Markmiðið er að vekja athygli almennings á mikilvægi skyndihjálpar og hvetja sem flesta til að vera undir það búnir að veita hjálp á vettvangi vegna slysa og veikinda. Við þekkjum flest sögur úr raunveruleikanum þar sem skjót viðbrögð einstaklinga við bráðar aðstæður hafa bjargað mannslífum. Oftast er það fólk sem hefur sótt námskeið í fyrstu hjálp þar sem m.a. eru kennd viðbrögð við hjartastoppi, s.s. hjartahnoð, blástur og notkun sjálfvirks hjartastuðtækis, - við slysum og áverkum og bráðum veikindum, s.s. brjóstverk, heilablóðfalli og bráðaofnæmi o.fl. RKÍ býður slík námskeið reglulega og ég hvet alla til að læra skyndihjálp. Því hver mínúta getur skipt máli.

Hvar er næsta hjartastuðtæki þegar á reynir?

Hjartastuðtæki er að finna víða um land, meðal annars á vinnustöðum, í íþróttamannvirkjum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Þegar hjartastopp verður skiptir máli að vita hvar næsta hjartastuðtæki er að finna.

Heilbrigðisráðuneytið í samstarfi við fjölda aðila hefur sett á fót kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að gera almenningi og Neyðarlínunni kleift að finna með hraði næsta tiltæka hjartastuðtæki þegar á reynir. Nú stendur yfir skráning tækja í kortasjána og unnið er að því að ná inn sem flestum skráningum áður en kortasjáin verður formlega opnuð. Með verkefninu verður til heildstæð kortasjá yfir hjartastuðtæki á Íslandi þar sem upplýsingar um staðsetningu og aðgengi að tækjunum verða aðgengilegar þegar á reynir. Verkefnið hefur notið styrks af byggðaáætlun stjórnvalda.

Skráning hjartastuðtækja í kortasjá

Það er einfalt að skrá hjartastuðtæki í nýju kortasjána og tekur aðeins nokkrar mínútur. Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja geta jafnframt valið hvort upplýsingar um staðsetningu tækisins verði sýnilegar almenningi eða eingöngu aðgengilegar Neyðarlínunni.

Hjartastuðtæki geta bjargað lífum, en aðeins ef þau finnast þegar á reynir. Þess vegna skiptir máli að sem flest tæki verði skráð í kortasjána. Ég hvet því alla eigendur og umsjónaraðila hjartastuðtækja til að taka nokkrar mínútur frá og skrá tækin sín. Sú skráning getur skipt sköpum.

Skráning tækja: Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja

Höfundur er heilbrigðisráðherra.




Skoðun

Sjá meira


×