Fótbolti

Bo Johans­son er látinn

Smári Jökull Jónsson skrifar
Bo Johansson var landsliðsþjálfari Íslands 1990-91.
Bo Johansson var landsliðsþjálfari Íslands 1990-91. Vísir/Getty

Bo Johansson, fyrrum landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, er látinn 83 ára að aldri. Danska ríkisútvarpið greinir frá andláti hans en Johansson þjálfaði íslenska landsliðið á árunum 1990-91.

Auk þess að stýra íslenska landsliðinu þá stýrði hann félagsliðum í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Noregi. Þá var Johansson landsliðsþjálfari Dana á HM í Frakklandi árið 1998 og á EM í Belgíu og Hollandi árið 2000. 

Hann hætti eftir Evrópumótið en þar var árangur Dana langt undir væntingum og töpuðu þeir öllum leikjum sínum án þess að skora mark.

Bo Johansson var fæddur í Kalmar í Svíþjóð 28. nóvember árið 1942 og hóf þjálfaraferil sinn í Kalmar FF árið 1973 en færði sig yfir til nágrannaliðsins Östers árið 1979 og gerði liðið að sænskum meisturum tvö ár í röð, árin 1980 og 1981.

Johansson stýrði Panionos í Grikklandi áður en hann tók við sem landsliðsþjálfari Íslands árið 1990. Hann stýrði landsliðinu í undankeppninni fyrir EM árið 1992 sem liðið hóf á 1-0 heimasigri gegn Albaníu. Við tóku fimm eins marks töp í röð gegn Spánverjum, Tékkum, Frökkum og Albaníu en Johanssonen hætti með íslenska liðið áður en undankeppninni var lokið vegna fjölskylduaðstæðna. 

Síðasti leikur hans sem landsliðsþjálfari Íslands var gegn Dönum í byrjun september árið 1991.

Á seinni árum stýrði Johansson meðal annars IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni og Molde í Noregi sem hann gerði að bikarmeisturum þar í landi árið 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×