Innlent

Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki

Birgir Olgeirsson skrifar
Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, segir kennara óttast um öryggi sitt og kallar eftir skýrara verklagi til að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks.
Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, segir kennara óttast um öryggi sitt og kallar eftir skýrara verklagi til að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Vísir/Einar

Fólk hefur farið inn í skóla í Reykjavík og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að endurskoða þurfi hvernig öryggi nemenda og kennara sé tryggt í skólunum. Hún segir samfélagið hafa breyst og kennarar óttast um öryggi sitt. Hún hafi heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennsla fer fram.

Kristín Björnsdóttir er formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Hún segir mikilvægt að tryggja öryggi bæði nemenda og starfsfólks.

„Samfélagið hefur þróast. Það eru áhyggjur af auknu ofbeldi og ýmsu öðru og við þurfum að geta tryggt öryggi allra.“

Öryggismál voru til umræðu á fundi skóla- og frístundaráðs á mánudag. Í bókun Kristínar, sem situr í ráðinu sem áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, kemur fram að einstaklingar eða hópar hafi komið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki.

„Slík atvik hafa komið upp á síðustu vikum og brýnt að kortleggja skólabyggingar með tilliti til þess,“ segir í bókuninni.

Unnið að úrbótum á öryggismálum skólanna

Unnið er að því að bæta öryggismál í skólum borgarinnar. Öryggisstefna og verklag skóla- og frístundasviðs voru kynnt á fundinum. Ráðið fagnar þeirri vinnu en leggur áherslu á áframhaldandi þróun verklags, fræðslu og reglulegar æfingar svo starfsfólk sé undirbúið að bregðast við ólíkum aðstæðum.

„Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða bæði fleiri og alvarlegri,“ segir í bókun ráðsins.

Fólk hefur farið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Kallað er eftir úrbótum á öryggismálum skólanna.

Ráðið telur mikilvægt að mæta þeirri þróun með markvissum forvörnum og stuðningi við starfsfólk. Sérstaklega þurfi að huga að aðgangsstýringu í húsnæði þar sem börn dvelja og hafa öryggi þeirra ávallt að leiðarljósi.

Umræðan eigi jafnframt að nýtast í áframhaldandi vinnu við forvarnaráætlun ráðsins og eftirfylgni með henni.

Ellefu inngangar og engin móttaka

Kristín segir fjölda innganga og skipulag skólabygginga geta gert erfitt að hafa yfirsýn yfir aðgengið.

„Það eru skólar með ellefu innganga í byggingunni. Skólastarf stendur fram eftir degi og svo tekur frístundastarfið við. Það getur verið flókið að hafa yfirsýn yfir hverjir fara inn og út og hvar.“

Hún segir því þurfa að kortleggja byggingarnar og skoða hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að fólk fari óhindrað inn á kennslusvæði.

Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segist hafa heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennsla fer fram. Hún kallar eftir skýrara verklagi til að tryggja öryggi nemenda og kennara.

„Margar skólabyggingar eru þannig skipulagðar að þar er engin móttaka. Skrifstofan getur verið á annarri hæð eða annars staðar í byggingunni. Fólki er ekki gert skylt að láta vita af sér og það getur komist inn í bygginguna.“

Að sögn Kristínar hafa einhverjir skólar þegar tekið skref til að takmarka aðgengi. Skoða þurfi hvaða inngangar séu ólæstir á hverjum tíma. Hún hafi jafnframt heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennt sé.

Hún telur mikilvægt að samræma verklag og gera fólki ljóst hvert það eigi að fara þegar það kemur í skólann.

„Fyrst og fremst þarf fólk að tilkynna sig á skrifstofu og gera grein fyrir erindi sínu í stað þess að ganga um skólann og fara beint inn á kennslusvæðið. Börnin hafa rétt á persónuvernd og kennarar líka.“

Ratar ekki allt í fréttirnar

Kristín vill ekki tilgreina einstök atvik en segir ekki allt sem gerist í skólunum rata í fréttir. Hún leggur áherslu á að öryggismálin snúist einnig um hvernig brugðist sé við alvarlegum hegðunarvanda nemenda.

„Við búum við þann raunveruleika að fólk getur komist inn í skólabyggingar. Við erum líka með nemendur sem hafa alvarleg frávik í hegðun og það þarf að vera skýrt hvernig verklaginu er framfylgt.“

Margir inngangar að skólabyggingum geta gert erfitt að fylgjast með hverjir koma og fara. Formaður Kennarafélags Reykjavíkur vill að gestir tilkynni komu sína og erindi á skrifstofu áður en þeir fara inn á kennslusvæði.Vísir/Anton Brink

Hún segir kennara oft leita til sín vegna áhyggna af eigin öryggi.

„Kennarar hafa oft samband við mig þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum af öryggi sínu og upplifa sig óvarða. Þeir þurfa að bregðast við ógnandi hegðun nemenda og geta orðið fyrir alvarlegum skaða.“

Kristín leggur áherslu á að nemendur séu í forgrunni. Skýr viðbrögð þurfi að tryggja öryggi allra og koma í veg fyrir að aðstæður þróist á verri veg.

Geti þurft að fara í mál við foreldra

Kristín segir einnig dæmi um að kennarar hafi þurft að sækja sjálfir bætur vegna skaða sem þeir hafi orðið fyrir.

„Við höfum dæmi um kennara sem hafa orðið fyrir skaða og þurft að sækja bætur sjálfir. Kennari gæti þurft að fara í mál við foreldra barns sem beitir ofbeldi vegna þess að tryggingar bæta ekki skaðann.“

Hún segir slíka stöðu geta verið sérstaklega erfiða fyrir kennarann.

„Það er engum létt verk að lögsækja foreldra nemanda síns. Því fylgja erfiðar tilfinningar.“

Kristín fagnar því að borgin vinni að úrbótum í öryggismálum. Hún segir þó nauðsynlegt að framkvæmdin sé skýr og öllum ljós.

„Við erum ekki að leggja til að loka og læsa öllu. Við þurfum að vera meðvituð um hvernig aðgengið inn í skólana er og hafa skýrt verklag.“


Tengdar fréttir

„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“

Formaður Félags grunnskólakennara segir að samtöl þurfi að eiga sér stað við rekstraraðila grunnskólanna um hvernig skóla eigi að bjóða upp á. Hún segist efast um að íslenskt samfélag vilji kasta ákveðnum námsgreinum fyrir róða þó að dýrt sé að kenna þær.

„Við erum til­búin að skoða lengingu skólaársins“

Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×