Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2026 10:12 Ung kona virðir fyrir sér heimili sitt í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt. AP/Efrem Lukatsky Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa.
Þetta fylgir á hæla þess að bandarískir embættismenn eru sagðir hafa hótað því að hætta stuðningi við Úkraínu, hætti Úkraínumenn ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Þá hefur Donald Trump kallað eftir því að Úkraínumenn fái nýjan forseta og hefur Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, tekið undir það. Sjá einnig: Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Umræddar takmarkanir eru sagðar snúa að því að móttökustöðvar sem ná tilteknum hraða slökkva á sér. Við það hafa úkraínskir hermenn misst samband við drónana sem þeir hafa verið að fljúga. Uppfært: Í fyrstu var talað um að sambandið slitnaði við dróna þegar þeir næðu 160 kílómetra hraða. Í kjölfar þess að fréttin var birt hafa borist fregnir af því að úkraínskir hermenn séu að missa sambandið við dróna á um sextíu kílómetra hraða. Wall Street Journal segir einnig frá því að takmarkanirnar snúi sérstaklega að Starshield, sem er sérstakur hluti Starlink undir stjórn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Það gefur til kynna að takmarkanirnar komi frá yfirvöldum í Bandaríkjunum. Enn sem komið er hefur ekkert heyrst þaðan. Blaðamaður Financial Times í Kænugarði segir takmarkanirnar hafi komið Úkraínumönnum í opna skjöldu og komið niður á störfum hermanna á víglínunni. Ekki hefur verið staðfest að þessar takmarkanir hafi vísvitandi verið settar á en Musk hefur áður verið sakaður um að beita Starlink með slíkum hætti. Ráðgjafi Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, segir að Starlink-takmarkanirnar geti varla verið tilviljun. Þetta hljóti að vera tengt pólitískum aðstæðum. Nota Starlink til að verjast nýjum sjálfsprengidrónum Úkraínumenn hafa lengi reitt sig mikið á notkun Starlink-gervihnatta SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, og móttökustöðvar til samskipta á víglínunni og til að stýra drónum sínum. Að undanförnu hefur Starlink reynst sérstaklega mikilvægt þegar kemur að því að stýra sérstökum varnardrónum sem eru hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum. Drónar eins og Sting eru sérstaklega hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum og Úkraínumenn oft við Starlink til að stýra þeim.AP/Efrem Lukatsky Rússar eru farnir að nota sífellt fleiri þotuknúna sjálfsprengidróna og eru þessir varnardrónar gífurlega mikilvægir gegn þeim. Starlink-móttökustöðvarnar eru að miklu leyti fjármagnaðar af ríkjum Evrópu og þar á meðal af Póllandi. Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, sendi Musk þau skilaboð í morgun að evrópskir viðskiptavinir hans væru að fylgjast með stöðunni. Hey, @elonmusk, big man, are you playing politics with your products again? As your European customers, we are watching you.— Radosław Sikorski 🇵🇱🇪🇺 (@sikorskiradek) October 14, 2026 Pólverjar hafa kennt Rússum um að kveikt hefði verið í gervihnattamóttökustöð fyrir Starlink í Póllandi í síðasta mánuði. Að minnsta kosti tveir hafa verið handteknir vegna skemmdaverksins Hafa beðið um að nota Starlink í Rússlandi Undanfarna mánuði hafa Úkraínumenn farið fram á að Musk opni á notkun þeirra innan Rússlands, sem myndi gera Úkraínumönnum kleift að beita langdrægum drónum sínum af meiri nákvæmni. Úkraínumenn vilja sérstaklega nota Starlink í Rússlandi til að elta uppi skotpalla Rússa fyrir skammdrægar skotflaugar, sem hafa reynst Úkraínumönnum mjög erfiðar á undanförnum mánuðum. Rússar beittu 39 skotflaugum og rúmlega 120 sjálfsprengidrónum gegn Úkraínumönnum í nótt. Árásirnar beindust að miklu leyti gegn orkuverum og orkuinnviðum í Úkraínu. Orkuinnviðir í og við Kænugarð eru sagðir hafa orðið fyrir sérstaklega miklum skemmdum. Sjá einnig: Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Undanfarna daga hafa Úkraínumenn einnig ekki fengið viðvaranir frá Bandaríkjamönnum um eldflaugaskot frá Rússlandi, eins og þeir hafa áður fengið. Það hefur þó ekki verið bendlað við hótanir Trump-liða heldur einstakar aðstæður og það að um skammdrægar skotflaugar er að ræða. Þetta fylgir á hæla þess að Trump lýsti því nýlega yfir að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. Það könnuðust hvorki Úkraínumenn né Rússar við en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump hefur sagt ósatt um samkomulag sem þetta. Hann hefur að undanförnu reynt að kenna árásum Úkraínumanna á olíuvinnslur í Rússlandi og aðra olíuinnviði um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum og annars staðar. Sérfræðingar segja það ekki rétt hjá Trump. Síðustu daga hafa Úkraínumenn forðast árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi en Rússar hafa gert fjölmargar árásir á orkuinnviði í Úkraínu. Selenskí sagði í færslu á samfélagsmiðlum í morgun að allir í heiminum ættu að sjá raunveruleikann og bregðast við. Rússar hefðu sólundað þessu tækifæri til að draga úr spennu og halda „geðveikum“ hernaði þeirra áfram. Þá fór hann fram á að Trump beitti Rússa refsiaðgerðum í takt við ný lög sem samþykkt voru í Bandaríkjunum. Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa slíkum aðgerðum en aldrei staðið við það. Þá kallaði selenskí eftir fleiri flugskeytum í Patriot-loftvarnarkerfi Úkraínumanna, sem eru þeim mikilvæg til að verjast skotflaugum Rússa. „Það er fullkomlega eðlilegt að við segjum við Bandaríkin, Evrópu og alla bandamenn okkar að ekkert ríki í heiminum eigi að vera skilið eftir eitt og óstutt í baráttunni við jafn brenglaðan og stríðsæstan aðila og Rússland. Ég er þakklátur öllum þeim sem styðja Úkraínu. Friður getur aðeins náðst með styrk, og við biðjum Bandaríkin að hafa þá meginreglu Reagans í huga.“ Overnight, the Russians used 39 ballistic missiles and more than 120 attack drones and loitering munitions against our energy and critical infrastructure in Kyiv, the Kyiv region, and Kharkiv. A targeted Russian ballistic missile strike specifically against energy infrastructure – the very infrastructure covered by the ceasefire announced by the American President. The strike was entirely deliberate and demonstrative in its scale – Russia has never before shown such ostentatious disrespect toward the United States. Russia does not consider the American President’s statements strong. Unfortunately, at least 600,000 people are now without power. Outages could become even more widespread. Unfortunately, there is significant damage to facilities and equipment – at 26 facilities of our power system and four facilities in the oil and gas sector. I am grateful to the repair crews, all Ukrainian energy workers, and the personnel of the State Emergency Service of Ukraine for all their efforts to address the aftermath of this Russian strike. Tragically, there have been fatalities and injuries. We ask America and EVERYONE in the world who does not turn a blind eye to reality to respond – and to respond forcefully. Russia has squandered the opportunity for de-escalation and has clearly chosen to continue its insane war of annihilation. We ask President Trump to impose STRONG sanctions on Russia, especially since the Lindsey Graham bill, which was recently passed and signed into law, authorizes and regulates such measures. The American President has all the effective and necessary tools to bring peace closer through strength, justice, and pressure on the aggressor. We ask for additional packages of Patriot missile interceptors for Ukraine. It is entirely fair for us to tell the United States, Europe, and all our partners that no country in the world should be left alone to face such a deranged and pro-war actor as Russia. I am grateful to everyone who helps Ukraine! Peace can only come through strength, and we ask America to remember this principle of Reagan’s. Glory to Ukraine!— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 14, 2026 Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, sagði við blaðamenn í morgun að best væri að „svo frábær tækni eins og Starlink“ væri yfir höfuð ekki notuð í hernaði. Rússar notuðu Starlink mikið á sína dróna og til samskipta milli hersveita við innrásina í Úkraínu. Þá var móttökustöðvum smyglað í massavís til Rússlands, þar sem ekki mátti selja þær þangað með beinum hætti. SpaceX lokaði þó á það í byrjun árs með því að stofna sérstakan lista yfir móttökustöðvar sem Úkraínumenn nota, bæði almenningur og hermenn, og verður lokað á aðgengi óskráðra stöðva á svæðinu. Rússar lentu í miklu en tímabundnu basli eftir það. Síðan þá hafa þeir notað aðra tækni og byggt upp sína eigin til að stýra drónum sínum.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Donald Trump Vladimír Pútín Elon Musk SpaceX Hernaður Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira