Fótbolti

Myndaveisla: Breið bros og dans­spor í Dalnum

Sindri Sverrisson skrifar
Ásdís Karen Halldórsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir skelltu upp úr í fagnaðarlátunum eftir leik.
Ásdís Karen Halldórsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir skelltu upp úr í fagnaðarlátunum eftir leik. vísir/Anton

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fagnaði vel á Laugardalsvelli í gærkvöld eftir 5-0 stórsigur gegn Króatíu og samtals 9-0 sigur í einvígi liðanna í HM-umspilinu. Ljósmyndarinn Anton Brink náði frábærum myndum af stemningunni.

Ísland er nú einu skrefi frá því að komast á HM í fyrsta sinn en í veginum stendur lið Portúgals sem einmitt vann Ísland í umspili fyrir síðasta heimsmeistaramót.

Liðin mætast ytra í lok nóvember og svo á Laugardalsvelli í byrjun desember þar sem íslenskir sigurjólasöngvar fá vonandi að óma líkt og í gær.

Hlín Eiríksdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Katla Tryggvadóttir komu Íslandi í 3-0 áður en Diljá Ýr Zomers innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum. Þær Ída Marín og Katla náðu báðar þeim áfanga að skora sitt fyrsta landsliðsmark.

Myndaveislu úr Laugardalnum má sjá hér að neðan.

Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur gleyma sjálfsagt seint leikjunum við Króatíu þar sem þær voru báðar í stórum hlutverkum.vísir/Anton
Diljá hélt að markið hennar hefði verið dæmt af vegna rangstöðu...vísir/Anton
...en svo var ekki og hún endaði á að fagna tveimur mörkum.vísir/Anton
Fanney Inga Birkisdóttir fékk tækifæri í marki Íslands og tók þátt í dansinum eftir leik.vísir/Anton
Hetjurnar sem komu Íslandi á fyrsta stórmótið, EM 2009, voru heiðraðar fyrir leik í gær.vísir/Anton
Alexandra Jóhannsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Diljá Ýr Zomers þökkuðu fyrir stuðninginn.vísir/Anton
Glódís Perla fagnar hér Diljá Ýr Zomers sem kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk.Vísir/Anton Brink
Katla Tryggvadóttir fagnar sínu fyrsta landsliðsmarki.Vísir/Anton Brink
Glódís Perla Viggósdóttir lék sinn 150. A-landsleik og fékk flottan sigur í tilefni af tímamótunum.vísir/Anton
Hlín Eiríksdóttir kom Íslandi yfir í leiknum og Arna systir hennar fagnaði með henni.vísir/Anton
Ída Marín Hermannsdóttir skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og átti frábæran leik.vísir/Anton
Glódís Perla Viggósdóttir lék sinn 150. A-landsleik og hélt áfram að bæta leikjametið. Hún fékk gjöf fyrir leik sem Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ afhenti henni.vísir/Anton

Tengdar fréttir

Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin

Stelpurnar okkar í íslenska fótboltalandsliðinu geta fagnað vel og lengi í kvöld eftir stórsigurinn gegn Króötum. Þær fögnuðu meðal annars með því að kyrja jólalag í gleðivímu á Laugardalsvelli.

„Ég tek því hlutverki sem mér er gefið“

Íslenska kvennalandsliðið sigraði Króatíu, 5-0,  á Laugardalsvelli í kvöld. Diljá Ýr Zomers kom inn af varamannabekknum og lét heldur betur til sín taka þegar hún skoraði tvö mörk á lokamínútunum. Frábær innkoma sem gæti gefið Steina, landsliðsþjálfara,  hausverk þegar kemur að vali á byrjunarliðinu í næsta leik.

„Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina“

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, var afar sáttur með frammistöðu leikmanna í 5-0 sigri gegn Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland vann einvígið samtals 9-0 og mun liðið mæta Portúgal í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu 2027.

„Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“

Ída Marín Hermannsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag og setti heldur betur mark sitt á leikinn. Hún skoraði auk þess að leggja upp og var ánægð með sína frammistöðu í leikslok.

Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum

Portúgal var ekki frekar en Ísland í neinum vandræðum með að komast áfram í lokaumferð umspilsins um sæti á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu. Liðin mætast í tveggja leikja einvígi og þar eiga Íslendingar svo sannarlega harma að hefna.

Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum

Ísland tryggði sér í kvöld örugglega sæti í úrslitaeinvígi umspils um sæti á Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu á næsta ári. Ísland vann 5-0 sigur á Króatíu á Laugardalsvelli og mætir að öllum líkindum Portúgal í einvígi um sæti á HM.

Ís­land - Króatía 5-0 | Ís­lensk ein­stefna á Laugar­dals­velli

Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×