Horfa fram á sögulegt tap Diggers Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. október 2026 15:23 Tom Cruise fer með hlutverk Diggers Rockwell í stórmyndinni Digger sem hefur fengið misjafnar viðtökur og vakið mikið umtal. Warner Bros. Stórmyndin Digger stefnir í að skrá sig á spjöld sögunnar vegna dræmrar aðsóknar. Heildartap myndarinnar gæti numið allt að 29 milljörðum króna þegar kostnaður markaðsherferðar og hlutur bíóhúsa af tekjum myndarinnar er tekinn inn í jöfnuna. Fari svo gæti hún skipað sér í flokk með stærstu floppum kvikmyndasögunnar.
Bransamiðillinn Variety fjallar um aðsóknartölur og stórtap Digger. Kvikmyndin hefur fengið misjafnar viðtökur gagnrýnanda, allt frá miklu lofi yfir í sleggjudóma, en ívið betri viðbrögð hjá áhorfendum sem hafa þó ekki skilað sér nægilega vel í bíóhús. Digger er hamfaramynd í leikstjórn Alejandro González Iñárritu með Tom Cruise, John Goodman, Söndru Hüller og Riz Ahmed í aðalhlutverkum sem fjallar um olíujöfurinn Digger Rockwell sem steypir heiminum í glötun og þarf að reyna að bjarga sér úr heimsendaklípu. Sjá einnig: Digger grefur sína eigin gröf Digger kostaði 180 milljónir dala (um 22 milljarða króna) að framleiða, var frumsýnd í byrjun mánaðar og halaði inn tuttugu milljónum dala (um 2,4 milljarða króna) á heimsvísu opnunarhelgina. Kvikmyndaverið Warner Bros. Discovery horfði í kjölfarið fram á allt að 200 milljóna dala tap (um 24 milljarða króna). Tom Cruise og Riz Ahmed eru í burðarhlutverkum í myndinni.Warner Bros. Eftir aðra viku í bíóhúsum hefur útlitið þó versnað til muna. Aðsókn á Digger dróst saman um sextíu prósent milli helga og stendur heildaraðsóknin nú í fimmtíu milljónum dala (um sex milljarða króna). Ekki þykir líklegt að aðsóknin muni batna mikið úr þessu, þrátt fyrir ánægju margra áhorfenda, enda dregst aðsókn yfirleitt saman eftir því sem á líður. Variety heldur því fram að til að koma út á núlli þyrfti Digger að græða um 350 milljónir dala (rúmlega 42 milljarða króna) á heimsvísu, vegna þess að bíóhús taka um helming af miðasölutekjum. Talsmaður Warner Bros. hefur neitað fyrir það og sagt núllpunktinn vera nær 300 milljónum dala. Uppblásinn kostnaður og mislukkuð markaðsherferð Ástæðan fyrir þessu mikla tapi Digger skýrist að miklu leyti af gríðarháum kostnaði myndarinnar og markaðsherferð sem hefur ekki náð til almennings. Upphaflega átti framleiðsla myndarinnar að kosta 125 milljónir dala en sú upphæð blés upp í 180 milljónir dala þegar tökur fóru fram úr áætlunum. Í þokkabót eyddi kvikmyndaverið um 100 milljónum dala í markaðsherferðina og mun væntanlega fara í herferð fyrir Óskarinn á næstunni. Stórtap Digger passar vel við umfjöllunarefnið sem tæklar meðal annars hlutverk listar í samfélaginu.Warner Bros. Fjölmargar kvikmyndir skila auðvitað ekki hagnaði í bíóhúsum og geta grætt pening á streymisveitum en þeir samningar velta líka á miðaölutekjum. Kvikmyndaverið þarf þó að bíða enn lengur því Cruise fær í þessu tilfelli hluta af gróðanum. Verði tapið jafnmikið og er spáð gæti Digger ekki aðeins orðið stærsta flopp ársins heldur eitt stærsta flopp sögunnar og skipað sér í flokk með kvikmyndum á borð við Cutthroat Island (1995), Mortal Engines (2018), The 13th Warrior (1999) og The Marvels (2021). Digger er síðasta sjálfstæða kvikmynd Warner Bros. Discovery áður en það sameinast kvikmyndaverinu Paramount sem keypti hið fyrrnefnda á 110 milljarða dala (um 13 trilljónir króna) í síðustu viku. Eftir gott gengi í fyrra hefur Warner Bros. sent frá sér hvert floppið á fætur öðru í ár, þar á meðal The Bride og Supergirl. Kvikmyndaverið bindur hins vegar vonir við að stórmyndin Dune: Part III muni snúa genginu við í desember.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira