Körfubolti

Reikna með Kane en vita ekki hve­nær

Sindri Sverrisson skrifar
DeAndre Kane hefur ekki verið allt of upptekinn að því að svara í símann. Þeir Daniel Mortensen verða ekki með Íslandsmeisturunum í kvöld.
DeAndre Kane hefur ekki verið allt of upptekinn að því að svara í símann. Þeir Daniel Mortensen verða ekki með Íslandsmeisturunum í kvöld. vísir/Sigurður Ingi Pálsson

Grindvíkingar reikna með því að DeAndre Kane komi innan tíðar til landsins og verði með Íslandsmeisturunum í Bónus-deildinni í körfubolta í vetur. Hann verður þó ekki með í stórleiknum gegn bikarmeisturum KR í 1. umferðinni í kvöld.

„Þetta er allt í vinnslu,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, um málefni Kane.

Á miðvikudaginn greindi Jóhann frá því að Kane væri enn ekki kominn til landsins og að raunar hefði ekkert náðst í hann síðustu daga. Því ríkti óvissa um framhaldið og að Grindvíkingar væru farnir að huga að því hvað yrði gert ef Kane kæmi ekki.

Í dag segir Jóhann hins vegar reiknað með því að Kane spili með Grindavík í vetur. Hann gat þó ekki svarað því hvenær Kane kæmi.

„Við erum bara með fólk að vinna í þessu og hann er væntanlegur til landsins, vonandi sem fyrst.“

Íslandsmeistararnir mæta svo sannarlega lemstraðir til leiks í kvöld en staðan er þó skárri en þegar þeir steinlágu gegn KR-ingum í Meistarakeppni KKÍ um síðustu helgi.

Jeremy Pargo og Unnsteinn Rúnar Kárason verða nefnilega með í kvöld en Daniel Mortensen missir af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla og Ólafur Ólafsson gæti orðið frá keppni fram að áramótum vegna meiðsla.

Unnsteinn Rúnar Kárason og Jeremy Pargo voru í borgaralegum klæðum síðasta laugardag þegar Grindavík steinlá gegn KR í Meistarakeppni KKÍ. Þeir verða með í kvöld.vísir/Guðmundur

Pargo, lykilmaðurinn í sigri Grindavíkur í úrslitakeppninni síðasta vor, fylgdist með leiknum síðasta laugardag í borgaralegum klæðum en það var vegna þess að hann hafði flogið til landsins þá um morguninn.

„Staðan mætti alveg vera betri. Daniel og Ólafur eru auðvitað ekki með en Unnsteinn og Pargo verða með svo þetta mun líta betur út en á laugardaginn,“ segir Jóhann.

Leikur Grindavíkur og KR er á Sýn Sport Ísland í kvöld klukkan 19:30. Strax að leik loknum er Bónus Körfuboltakvöld á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×