Innlent

Kannast ekkert við brot og munu að­stoða við rann­sókn

Árni Sæberg skrifar
Andri Guðmundsson er stjórnarformaður Beru.
Andri Guðmundsson er stjórnarformaður Beru. Vísir/Vilhelm

Stjórnendur Beru segjast engar upplýsingar hafa um að brot á samkeppnislögum hafi átt sér stað í starfsemi félagsins. Rík áhersla sé lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri þess og það sé hluti af þjálfun starfsfólks Ölgerðarinnar að fá fræðslu um það hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni.

Líkt og fjallað hefur verið um tilkynnti Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar og fleiri fyrirtækja, í morgun að Samkeppniseftirlitið hefði ráðist í húsleit hjá félaginu.

Erfiðlega hefur gengið að ná tali af stjórnendum Beru en félagið hefur nú sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að húsleitin varði rannsókn eftirlitsins á meintum brotum Ölgerðarinnar á reglum um bann við misnotkun á markaðsráðandi stöðu, í kjölfar kvartana samkeppnisaðila.

„Stjórnendur hafa engar upplýsingar um að brot hafi átt sér stað í starfsemi félagsins. Rík áhersla er lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri þess og er það hluti af þjálfun starfsfólks Ölgerðarinnar að fá fræðslu um það hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni. Ölgerðin og Bera munu aðstoða eftirlitið við athugun sína og vona að rannsókn þess ljúki sem fyrst. Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.“

Andri Guðmundsson, stjórnarformaður Beru, segir í samtali við fréttastofu að engin viðtöl verði veitt vegna málsins og að félagið vísi alfarið í tilkynninguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×