Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Lovísa Arnardóttir skrifar 9. október 2026 11:01 Myndirnar sem Adidas lagði fram í málsgögnum sínum. Alríkisdómstóll Ástralíu Adidas hefur höfðað mál gegn ástralska tískumerkinu White Fox fyrir að selja og auglýsa fatnað með fjórum röndum. Adidas telur hönnunina „villandi líka“ þeirra eigin en rendurnar þrjár á fötunum þeirra eru vel þekktar.
Fjallað er um málsóknina á vef BBC. Þar segir að Adidas hafi ítrekað, frá því í mars, óskað eftir því að White Fox hætti sölu og kynningu á fatnaði sínum en White Fox hafi hafnað því. Í skriflegri stefnukröfu sinni segir Adidas að þriggja randa merki fyrirtækisins sé „mjög þekkt og verðmætt“ í Ástralíu, þar sem það hafi verið skráð vörumerki frá árinu 1957. Adidas segir að White Fox hafi að minnsta kosti frá því í mars selt og auglýst fatnað með fjórum samsíða röndum af jafnri breidd. Telur Adidas það brjóta gegn vörumerkjarétti sínum. Hönnun White Fox sé „að verulegu leyti eins eða með öðrum hætti villandi lík“ hönnun Adidas. Adidas segir enn fremur í kröfu sinni að White Fox sé með þessu að „skapa tengingu í hugum neytenda“ milli vörumerkjanna eða að minnsta kosti „fara mjög nærri því að brjóta gegn vörumerkjaréttinum“. Rendurnar þrjár á Adidas buxunum eru afar þekktar. Vísir/Getty Málið var tekið fyrir í dómstóli í Ástralíu á föstudag þar sem lögmenn White Fox neituðu því að hafa brotið gegn vörumerkjarétti Adidas. Í frétt BBC segir að White Fox hafi ekki enn lagt fram formlega greinargerð í málinu, en lögmenn fyrirtækisins hafi bent á að önnur þekkt áströlsk tískumerki, svo sem Cotton On, Sportscraft og Glassons, seldu einnig fatnað með „svipuðum skrautröndum“. Lögmenn Adidas sögðu fyrir dómi að White Fox hefði, með því að auglýsa og selja fatnað með fjórum röndum, viljað nýta sér það hversu þekkt Adidas er. Vinsælt í Ástralíu, Bretlandi og Bandaríkjanna Í fréttinni segir að White Fox sé vinsælt netverslunarmerki í hraðtísku meðal unglinga og ungs fólks í Ástralíu, Bretlandi og Bandaríkjunum. Búist er við að réttarhöld yfir málinu standi í þrjá til fjóra daga snemma á næsta ári, samkvæmt upplýsingum frá dómstólnum. Adidas hagnaðist um 24,8 milljarða evra tekjur árið 2025 sem samsvarar 3,4 billjónum íslenskra króna. Fyrirtækið fer einnig fram á skaðabætur og krefst þess að White Fox greiði hagnað sinn af sölu umræddra vara, auk vaxta og málskostnaðar. Meðal gagna sem Adidas lagði fram voru myndir þar sem vörur fyrirtækjanna voru bornar saman hlið við hlið. Þar mátti meðal annars sjá íþróttabuxur og stuttbuxur til heimilisnota frá White Fox, auk mynda af auglýsingum á strætisvögnum og við biðskýli. Í einu dæmi heldur Adidas því fram að vörulýsing á netinu frá júní 2025 hafi sýnt sokka merkta White Fox, þar sem fyrirsætan klæddist bleikum Adidas-skóm. View this post on Instagram A post shared by White Fox (@whitefoxboutique) Í frétt BBC segir að árið 2013 hafi Adidas höfðað mál í Ástralíu gegn Pacific Brands vegna sölu á skóm með fjórum röndum og hafði sigur í málinu. White Fox var stofnað árið 2013 af Georgiu og Daniel Contos. Fyrirtækið er í einkaeigu þeirra hjóna, sem eru af grískum uppruna og áströlsk, og Melinu Maceri, móður Daniels. Fyrirtækið hefur verið að hasla sér völl í Bandaríkjunum og hóf starfsemi á breska markaðnum árið 2024. Samkvæmt ástralska viðskiptablaðinu Australian Financial Review námu tekjur fyrirtækisins 542 milljónum ástralskra dala á tólf mánaða tímabili sem lauk í júní 2025. Það samsvarar um 46 milljörðum íslenskra króna. Í frétt BBC segir að tekjurnar hafi fjórfaldast frá árinu 2022 þegar þær námu 121 milljón ástralskra dala eða rúmum tíu milljörðum íslenskra króna.
Ástralía Tíska og hönnun Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira