Lífið

Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum

Boði Logason skrifar
Hér má sjá Benedikt Erlingsson og Helgu Brögu í hlutverkum sínum í nýja sketsinum sem verður frumsýndur annað kvöld í afmælisþætti Sýnar.
Hér má sjá Benedikt Erlingsson og Helgu Brögu í hlutverkum sínum í nýja sketsinum sem verður frumsýndur annað kvöld í afmælisþætti Sýnar. Sýn

Einn eftirminnilegasti skets Fóstbræðra á sínum tíma fjallaði um manninn sem fékk ekki að fara út með strákunum. Benedikt Erlingsson lék eiginmann sem bar sig illa og Helga Braga eiginkonuna Veru Dögg sem gaf sig ekki, fyrr en að lokum.

Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sýndur á Sýn og Vísi þar sem lykilfólk á stöðinni í gegnum árin kemur saman og óhætt að segja að stuðið sé mikið. Þátturinn hefst klukkan 19:20 í opinni dagskrá.

Jón Jónsson flytur meðal annars afmælislag, Vala Matt og Sóli Hólm fara á kostum auk þess sem framhaldsútgáfa af fyrrnefndum Fóstbræðraskets verður frumsýnd.

Það eru liðin ansi mörg ár síðan Benedikt grét á eldhúsgólfinu heima og Helga Braga leyfði honum að lokum að fara út með strákunum. 

Í nýjum skets eru hjónin komin á fund hjónabandsráðgjafa og kannski löngu kominn tími til.

Þátturinn í heild sinni, ásamt nýjum Fóstbræðra-skets og fjölmörgum öðrum skemmtiatriðum, hefst eins og áður segir á Sýn og Vísi klukkan 19:20 annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.