Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Sif Sigmarsdóttir skrifar 8. október 2026 07:01 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér. „
Hvers vegna eru Bandaríkjamenn feitir?“ spurði blaðamaðurinn Michael Pollan í metsölubókinni The Omnivore’s Dilemma sem í ár á 20 ára útgáfuafmæli. Samkvæmt Pollan lá svarið ekki aðeins í stórum skammtastærðum og lítilli hreyfingu heldur einnig í landbúnaðarstefnu Richards Nixon. Að sögn Pollan leiddi stuðningur ríkisins við maísrækt til gífurlegrar framleiðsluaukningar sem var ekki í nokkru samræmi við eftirspurn. Offramboð varð til þess að verðið á maís féll langt niður fyrir framleiðsluverð. Ríkið bætti bændum upp tapið svo að enginn hvati var til að draga úr ræktun. Heilu fjöllin af maís hlóðust upp. Hvað var hægt að gera við allan þennan maís? Niðurgreiddu eigin þyngdaraukningu Matvælaiðnaðurinn dó ekki ráðalaus og var fljótur að færa sér í nyt ódýrt hráefnið. Maísinn var meðal annars unninn í kornsíróp og maíssterkju sem nota mátti sem sætuefni eða næringarsnautt fylliefni í matvæli á borð við brauð, jógúrt, morgunkorn og gosdrykki. Richard Nixon fylgist með Earl Butz taka við embætti landbúnaðarráðherra árið 1971. Butz hvatti síðar bandaríska bændur til að rækta meðal annars maís „frá einni girðingu að þeirri næstu“.GETTY Þegar bók Pollans kom út reiknaðist honum til að meira en fjórðungur alls varnings stórmarkaða innihéldi unninn maís. Bæði óafvitandi og óvart niðurgreiddu bandarískir skattgreiðendur þróun í matvælaframleiðslu sem leiddi til þyngdaraukningar og heilsuleysis þjóðarinnar. Auknum umsvifum slegið á frest Skúli Mogensen, stofnandi sjóbaðanna í Hvammsvík, sagðist í síðustu viku ætla að slá á frest áformum um aukin umsvif fyrirtækisins. Kvað hann ástæðuna fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, sem er hið almenna skatthlutfall virðisaukaskatts af verði vöru og þjónustu hér á landi. „Þetta er það mikil hækkun og kemur með svo skömmum fyrirvara að hún mun óhjákvæmilega setja strik í reikninginn,“ lýsti Skúli yfir í Morgunblaðinu, en á teikniborðinu höfðu að hans sögn verið „boutique“-hótel, veitingastaður og fleiri laugar. Á skilið stuðning og velvild Íslendingar eiga ferðaþjónustunni margt að þakka. Ekki aðeins reyndist greinin þjóðinni lífsbjörg í kjölfar bankahrunsins heldur hefur straumur ferðafólks hingað til lands glætt borg og bæi lífi. Þótt kvarta megi undan örtröð á annatímum og fjölsóttum áfangastöðum hefur þeim stöðum fjölgað til muna, sem hægt er að heimsækja og kvarta yfir örtröðinni. Ferðaþjónustan á stuðning og velvild landsmanna skilið. Skattaívilnanir á hún hins vegar ekki sjálfkrafa tilkall til. Er raunverulegur fótur fyrir rekstrinum? Stuðningur bandarískra stjórnvalda við maísrækt leiddi til framleiðsluaukningar sem var ekki í nokkru samræmi við eftirspurn. Að auki stuðlaði ívilnunin að útbreiðslu hins illræmda kornsíróps og fylliefna sem þenja út gjörunnin matvæli og sögð eru ógn við almenna heilsu á Vesturlöndum. Gjörunnin matvæli hafa verið tengd við aukna hættu á offitu, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum og ákveðnum tegundum krabbameins. Skúli Mogensen gefur í skyn að frekari uppbygging fyrirtækis hans svari ekki kostnaði nema hann njóti áframhaldandi skattaívilnunar af hálfu ríkisins. Gildir þá einu að stór hluti starfseminnar – hótelrekstur og veitingastaðir – muni áfram bera 11 prósenta virðisaukastatt. Þá er vert að spyrja: Sé viðskiptaáætlun Skúla Mogensen raunverulega svo viðkvæm að hún þoli ekki breytingu á virðisaukaskatti, er yfir höfuð fótur fyrir rekstrinum? Baðlón spretta nú upp um allar koppagrundir. Er um að ræða sjálfbæran rekstur eða kornsíróp ferðaþjónustunnar?
Samhengið með Sif Ferðaþjónusta Matur Heilsa Bandaríkin Landbúnaður Efnahagsmál Matvælaframleiðsla Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan. 1. október 2026 07:02 Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Mary Maloney beið þess með eftirvæntingu að eiginmaður hennar kæmi heim úr vinnunni. Hún var komin sex mánuði á leið af fyrsta barni og naut þess að stjana við manninn sinn. 24. september 2026 07:03 Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. 17. september 2026 07:02 Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Skóli barnanna hófst loks í vikunni hér í London þar sem ég bý. Að vanda kem ég undan sumrinu full af sjálfsfyrirlitningu. Guð hvað börnin mín hljóta að vera fegin að komast í skólann eftir að hafa þurft að þola mig í sjö vikur. 10. september 2026 07:02 Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda. 3. september 2026 07:03 Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02 Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02 Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01 Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00 Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00 Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00 Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02 Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00 Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02 Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01 Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02 Mest lesið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Eva Marie Saint er látin Lífið Fleiri fréttir Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Sjá meira
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan. 1. október 2026 07:02
Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Mary Maloney beið þess með eftirvæntingu að eiginmaður hennar kæmi heim úr vinnunni. Hún var komin sex mánuði á leið af fyrsta barni og naut þess að stjana við manninn sinn. 24. september 2026 07:03
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. 17. september 2026 07:02
Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Skóli barnanna hófst loks í vikunni hér í London þar sem ég bý. Að vanda kem ég undan sumrinu full af sjálfsfyrirlitningu. Guð hvað börnin mín hljóta að vera fegin að komast í skólann eftir að hafa þurft að þola mig í sjö vikur. 10. september 2026 07:02
Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda. 3. september 2026 07:03
Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02
Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01
Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00
Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00
Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02
Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00
Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02
Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02