Innlent

Niður­rif hafið á Laugasól

Lovísa Arnardóttir skrifar
Endanleg hönnun nýs leikskóla liggur ekki fyrir.
Endanleg hönnun nýs leikskóla liggur ekki fyrir. Vísir/Anton Brink

Niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk í Laugardal hófst fyrr í þessum mánuði. Ákveðið var í nóvember árið 2024 að rífa leikskólann en verkið var ekki boðið út fyrr en í sumar. Ekki liggur fyrir endanleg hönnun á nýjum leikskóla né hvenær framkvæmdir geta hafist. 

Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir endanleg hönnun hússins né hvenær framkvæmdir geti hafist.

Leikskólinn er í dag  þriggja deilda leikskóli við Leirulæk og dvelja 45 börn á leikskólanum samtímis samkvæmt vef borgarinnar. Áður voru um hundrað börn á leikskólanum og sex deildir.  Leikskólinn hefur verið í húsnæðisvanda um árabil en fyrst stóð til að endurgera húsið sem nú er verið að rífa. Þegar byrjað var að grafa frá húsinu árið 2024 kom í ljós að húsið, sem byggt var árið 1965, stóð ekki á sökklum og jarðvegurinn var sendinn og því ekki hæfur til burðar miðað við þær endurbætur sem áætlaðar voru.

Leikskólinn var áður um hundrað barna leikskóli en tekur aðeins inn um helming þess í dag. Vísir/Anton Brink

Borgarráð samþykkti svo í desember sama ár að heimila umhverfis- og skipulagssviði að hætta framkvæmdum og segja upp verksamningi við verktaka um viðgerðir og endurbætur á leikskólanum. Þá var ákveðið að rífa bæði hús leikskólans og byggja nýjan.

Börnin á einum stað

Árin 2024 og 2025 voru börn leikskólans tímabundið á tveimur stöðum, í Safamýri og í öðru húsnæði leikskólans á sama reit, en frá hausti 2025 ár hafa þau einungis verið í öðru húsnæði skólans við Leirulæk, sem iðulega er kallað Lækjarborg eins og leikskólinn sem áður var rekinn þar, og færri börn tekin inn.

Enn er starfsemi í hinni byggingu leikskólans. Vísir/Anton Brink

Í svari frá Reykjavíkurborg um niðurrifið segir að í samræmi við tillögur um uppbyggingu leikskóla sem samþykktar voru í borgarstjórn í júní 2025 sé gert ráð fyrir að nýr leikskóli rísi á lóðinni.

„Enn er starfsemi í Laugasól-Lækjarborg og því hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um hvort eða hvenær það hús verður rifið,“ segir enn fremur í svarinu.

Hagstæðar markaðsaðstæður

Verktakafyrirtækið H2Orka ehf. sér um niðurrifið en tilboð þess hljóðaði upp á rúmar 25 milljónir. Kostnaðaráætlun Reykjavíkurborgar hljóðaði upp á 71 milljón.

Samþykkt var að rífa leikskólann í desember 2024. Hann hefur þó staðið tómur lengur. Vísir/Anton Brink

Hvað varðar mun á kostnaðaráætlun og tilboði segir í svari borgarinnar að kostnaðaráætlanir séu unnar á grundvelli upplýsinga sem liggi fyrir á hverjum tíma og feli gjarnan í sér ákveðna varúð.

„Tilboðið sem barst var mun lægra en kostnaðaráætlunin, sem bendir til að markaðsaðstæður hafi verið hagstæðar og samkeppni góð. Einnig má gera ráð fyrir að einstakir kostnaðarliðir í áætluninni hafi reynst of háir miðað við raunverulegt umfang verksins,“ segir í svarinu.


Tengdar fréttir

Samþykkja að leikskóla­byggingin verði rifin

Borgarráð Reykjavíkurborg hefur samþykkt ósk umhverfis- og skipulagssviðs um að stöðva framkvæmdir við endurbætur á leikskólanum Laugasól við Leirulæk og heimild til að rífa húsið til að hægt sé að hanna og reisa nýjan leikskóla á lóðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×