Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson og Margrét Bjarnadóttir skrifa 6. október 2026 21:30 Það er fátt sem skiptir samfélagið meira máli en hvernig okkur tekst að búa börnin okkar undir framtíðina. Þar gegna grunnskólarnir lykilhlutverki. Þeir eiga að skapa börnum færni, sjálfstraust og verkfæri til að takast á við samfélag sem tekur sífelldum breytingum. Þeir eiga líka að efla þekkingu barna með þeim hætti að hægt sé að mæla árangurinn og fylgja honum eftir. Við höfum öll metnað fyrir vönduðu skólastarfi og viljum að börnin okkar fái eins góða menntun og kostur er. Metnaður felst þó ekki aðeins í því að fagna því sem vel gengur, við þurfum líka að geta lært af reynslunni og rætt af hreinskilni um hvað megi betur fara. Niðurstöður námsmats á borð við PISA eru einn hluti þeirrar myndar. Þær gefa okkur mikilvægar vísbendingar um stöðu og þróun námsárangurs og geta hjálpað okkur að greina hvar styrkleikarnir liggja og hvar tækifæri eru til umbóta. En tölurnar einar segja ekki alla söguna. Við þurfum einnig að spyrja hvort börnin nái góðum tökum á námsefninu og hvort þeim líði vel í skólanum og því umhverfi sem við búum þeim. Umræðan um niðurstöður námsmats þarf einnig að leiða til skýrra svara: Hvar þurfa nemendur meiri stuðning? Hvað hefur gefist vel og hvað illa? Hvað þurfa skólarnir til að styðja enn betur við nemendur? Sjónarmið foreldra skipta máli Við trúum því að farsælasta niðurstaðan náist með góðri samvinnu heimilis og skóla. Skólastjórnendur og kennarar búa yfir faglegri þekkingu og reynslu en foreldrar þekkja börnin sín og styrkleika þeirra best. Þegar þessi sjónarmið mætast í opnu og hreinskilnu samtali skapast betri grundvöllur fyrir ákvarðanir um skólastarf og þróun þess. Garðabær býður foreldrum og forráðafólki grunnskólabarna á opinn fund um skólamál í Miðgarði miðvikudaginn 7. október klukkan 19:30. Þar ræðum við niðurstöður PISA 2025, námsárangur barna í Garðabæ og hvaða áherslur í námi geta búið börnin okkar best undir framtíðina. Umfram allt viljum við heyra sjónarmið foreldra og forráðafólks og eiga í uppbyggilegu samtali um skólastarfið. Við eigum það sameiginlega markmið að börnin okkar fái góða menntun og séu vel í stakk búin til að takast á við framtíðina. Okkar ábyrgð er að fylgja því samtali eftir og nýta það sem fram kemur til að efla skólastarfið. Höfundar eru bæjarstjóri Garðabæjar og formaður grunnskólanefndar Garðabæjar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Almar Guðmundsson Skóla- og menntamál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Það er fátt sem skiptir samfélagið meira máli en hvernig okkur tekst að búa börnin okkar undir framtíðina. Þar gegna grunnskólarnir lykilhlutverki. Þeir eiga að skapa börnum færni, sjálfstraust og verkfæri til að takast á við samfélag sem tekur sífelldum breytingum. Þeir eiga líka að efla þekkingu barna með þeim hætti að hægt sé að mæla árangurinn og fylgja honum eftir. Við höfum öll metnað fyrir vönduðu skólastarfi og viljum að börnin okkar fái eins góða menntun og kostur er. Metnaður felst þó ekki aðeins í því að fagna því sem vel gengur, við þurfum líka að geta lært af reynslunni og rætt af hreinskilni um hvað megi betur fara. Niðurstöður námsmats á borð við PISA eru einn hluti þeirrar myndar. Þær gefa okkur mikilvægar vísbendingar um stöðu og þróun námsárangurs og geta hjálpað okkur að greina hvar styrkleikarnir liggja og hvar tækifæri eru til umbóta. En tölurnar einar segja ekki alla söguna. Við þurfum einnig að spyrja hvort börnin nái góðum tökum á námsefninu og hvort þeim líði vel í skólanum og því umhverfi sem við búum þeim. Umræðan um niðurstöður námsmats þarf einnig að leiða til skýrra svara: Hvar þurfa nemendur meiri stuðning? Hvað hefur gefist vel og hvað illa? Hvað þurfa skólarnir til að styðja enn betur við nemendur? Sjónarmið foreldra skipta máli Við trúum því að farsælasta niðurstaðan náist með góðri samvinnu heimilis og skóla. Skólastjórnendur og kennarar búa yfir faglegri þekkingu og reynslu en foreldrar þekkja börnin sín og styrkleika þeirra best. Þegar þessi sjónarmið mætast í opnu og hreinskilnu samtali skapast betri grundvöllur fyrir ákvarðanir um skólastarf og þróun þess. Garðabær býður foreldrum og forráðafólki grunnskólabarna á opinn fund um skólamál í Miðgarði miðvikudaginn 7. október klukkan 19:30. Þar ræðum við niðurstöður PISA 2025, námsárangur barna í Garðabæ og hvaða áherslur í námi geta búið börnin okkar best undir framtíðina. Umfram allt viljum við heyra sjónarmið foreldra og forráðafólks og eiga í uppbyggilegu samtali um skólastarfið. Við eigum það sameiginlega markmið að börnin okkar fái góða menntun og séu vel í stakk búin til að takast á við framtíðina. Okkar ábyrgð er að fylgja því samtali eftir og nýta það sem fram kemur til að efla skólastarfið. Höfundar eru bæjarstjóri Garðabæjar og formaður grunnskólanefndar Garðabæjar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun