Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar 7. október 2026 07:32 Markmið mennta- og barnamálaráðherra var að einfalda einkunnakerfi grunnskólanna, gera það samræmdara og auka jafnræði við útskrift. Þessi markmið munu ekki nást með þeim breytingum sem kynntar hafa verið. Enn verða útskriftarnemar fyrir barðinu á ósamræmi í námsmati. Ekki er tekið á vandanum sem við blasir heldur er vont bókstafakerfi dulbúið sem 1–10 tölukvarði sem það alls ekki er. Flækjan bitnar síðan á nemendum og starfsfólki skólanna sem eiga að vinna með kerfið. Ráðherra er ákveðin vorkunn enda bókstafakerfið skrifað í aðalnámskrá. Gildandi aðalnámskrá hefur verið dragbítur á skólastarfi frá 2011. Inntak hennar er víða huglægt, flókið og fjarlægt daglegu skólastarfi og skólum hefur reynst erfitt að innleiða hana með samræmdum hætti. Hvernig vinnutæki er aðalnámskrá ef kennarar þurfa meira en áratug til að ná sameiginlegum skilningi á því hvernig tækið á að virka? Undirritaður hefur árum saman bent á hið augljósa: Gera þarf nýja aðalnámskrá sem leggur áherslu á grunnþætti skólastarfs en hverfur frá háfleygu orðskrúði og tískubylgjum sem erfitt er að festa hendur á og mæla. Kennarar, nemendur og foreldrar eiga að geta nýtt aðalnámskrána til að styðja við nám nemenda, hún á ekki að vera hindrun. Til þess að nemendur njóti raunverulegs jafnræðis og samræmis þarf góð samræmd próf, bæði framfara- og lokapróf, þar sem viðeigandi viðmið aðalnámskrár eru undir, en ekki aðeins afmarkaður hluti eins og í Matsferli. Slík próf geta aukið félagslegan hreyfanleika og gefið nemendum, foreldrum og skólum samanburðarhæfar upplýsingar um framfarir og raunverulega stöðu nemenda. Samræmið verður að felast í því hvað er kennt, hvað er metið og hvernig það er metið, ekki hvort niðurstaðan er birt með bókstöfum, litum eða tölustöfum. Til þess að breyta þessu þarf sýn, þekkingu, hugrekki og getu. Ég veit að ráðherra er umhugað um að hjálpa nemendum og vonandi verða næstu skref til að bæta stöðuna en ekki flækja hana. Höfundur er þingmaður og fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokkurinn Skóla- og menntamál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Markmið mennta- og barnamálaráðherra var að einfalda einkunnakerfi grunnskólanna, gera það samræmdara og auka jafnræði við útskrift. Þessi markmið munu ekki nást með þeim breytingum sem kynntar hafa verið. Enn verða útskriftarnemar fyrir barðinu á ósamræmi í námsmati. Ekki er tekið á vandanum sem við blasir heldur er vont bókstafakerfi dulbúið sem 1–10 tölukvarði sem það alls ekki er. Flækjan bitnar síðan á nemendum og starfsfólki skólanna sem eiga að vinna með kerfið. Ráðherra er ákveðin vorkunn enda bókstafakerfið skrifað í aðalnámskrá. Gildandi aðalnámskrá hefur verið dragbítur á skólastarfi frá 2011. Inntak hennar er víða huglægt, flókið og fjarlægt daglegu skólastarfi og skólum hefur reynst erfitt að innleiða hana með samræmdum hætti. Hvernig vinnutæki er aðalnámskrá ef kennarar þurfa meira en áratug til að ná sameiginlegum skilningi á því hvernig tækið á að virka? Undirritaður hefur árum saman bent á hið augljósa: Gera þarf nýja aðalnámskrá sem leggur áherslu á grunnþætti skólastarfs en hverfur frá háfleygu orðskrúði og tískubylgjum sem erfitt er að festa hendur á og mæla. Kennarar, nemendur og foreldrar eiga að geta nýtt aðalnámskrána til að styðja við nám nemenda, hún á ekki að vera hindrun. Til þess að nemendur njóti raunverulegs jafnræðis og samræmis þarf góð samræmd próf, bæði framfara- og lokapróf, þar sem viðeigandi viðmið aðalnámskrár eru undir, en ekki aðeins afmarkaður hluti eins og í Matsferli. Slík próf geta aukið félagslegan hreyfanleika og gefið nemendum, foreldrum og skólum samanburðarhæfar upplýsingar um framfarir og raunverulega stöðu nemenda. Samræmið verður að felast í því hvað er kennt, hvað er metið og hvernig það er metið, ekki hvort niðurstaðan er birt með bókstöfum, litum eða tölustöfum. Til þess að breyta þessu þarf sýn, þekkingu, hugrekki og getu. Ég veit að ráðherra er umhugað um að hjálpa nemendum og vonandi verða næstu skref til að bæta stöðuna en ekki flækja hana. Höfundur er þingmaður og fyrrverandi skólastjóri.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun