Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. október 2026 13:50 Hafsteinn Einarsson doktor hefur um árabil útskýrt flóknar tölfræðilegar staðreyndir fyrir landsmönnum. Doktor í félagstölfræði segir að gera verði fyrirvara við rannsókn alþjóðlegrar hugveitu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir íslenskra karlmanna um karlmennsku. Hann setur stór spurningamerki við framkvæmd könnunarinnar, um sé að ræða vinnubrögð sem þekkist ekki í íslenskum félagsrannsóknum. Óheppilegt sé að Norræna ráðherranefndin hafi verið skrifuð fyrir skýrslunni.
Tilefnið er frétt af alþjóðlegri rannsókn hugveitunnar Equimundo sem unnin var að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir karla á Norðurlöndunum um karlmennsku. Svör íslenskra karla sem og kvenna virtust sýna að hugmyndir þeirra væru íhaldssamari en annarra á Norðurlöndum með miklum mun. Vísir hefur sent hugveitunni fyrirspurn vegna málsins og verða fréttir um málið uppfærðar. „Það er rosalega vandmeðfarið mál að gera svona alþjóðlegar kannanir, það þarf að huga að mörgu. Við eigum eftir að fá svör frá þessari hugveitu en ég les á milli línanna að þarna sé tvennt sem orsaki það að taka þurfi þessum niðurstöðum með fyrirvara, annars vegar að úrtakið endurspegli ekki þýðið og hins vegar það að mælingarnar séu ekki sambærilegar milli landa,“ segir Hafsteinn Einarsson doktor í félagstölfræði í samtali við Vísi. Líkt og fram kom var um að ræða netkönnun sem gerð var í febrúar til apríl á þessu ári meðal 18 til 45 ára fólks á Norðurlöndunum. Á Íslandi voru 542 þátttakendur en alls tóku 4574 einstaklingar á Norðurlöndum þátt, 73 prósent af þeim voru karlar. Var könnuninni ætlað að skoða hvernig karlar upplifa sig og stöðu sína, hvaða væntingar þeir tengja við karlmennsku og hvernig þeim líður í daglegu lífi. Konur voru einnig spurðar svo hægt væri að bera saman svör kynjanna. Svörin frá Íslandi endurspegla ekki allt Ísland „Ef við tökum fyrra atriðið þá segja þau að það sé notast við markvisst úrtak. Það er ekki aðferð sem við erum vön að nota því það er þá ekki byggt á tilviljunaraðferð,“ útskýrir Hafsteinn. „Það gæti verið kerfisbundin skekkja í því hver svarar og við sjáum það meðal annars á því að lýðfræðin, bakgrunnur svarenda er mjög ólíkur því sem við vitum að er á Íslandi. Það eru miklu fleiri með háskólapróf og heildarfjöldi svara frá Íslandi er innan við sex hundruð. Þetta þekkist yfirleitt ekki í íslenskum rannsóknum. Þú þarft víðtækan svarendafjölda til að geta dregið ályktanir um Íslendinga almennt.“ Hafsteinn segir rauðu flöggin í viðkomandi rannsókn vera of mörg til að hægt sé að treysta fullyrðingum í skýrslunni um útskýringagildi rannsóknarinnar. Í langflestum rannsóknum á Íslandi sé ekki mikið mál að ná í þúsund svarendur sem endurspegli íslensku þjóðina. „Við erum vön því að það muni einhverjum örfáum prósentustigum þegar fylgi flokka er mælt, þá erum við að tala um tvö til þrjú prósent. Ástæðan fyrir því að það gengur yfirleitt er að Gallup, Maskína og Félagsvísindastofnun leggja mikla peninga í að safna úrtaki sem líkist þjóðinni. Það getur hver sem er gert könnun en þá kemur það niður á gæðunum og það er það sem ég óttast að hafi gerst hér. Annað er að við erum með innan við hundrað kvenkyns svarendur og samt eru þessar tölur birtar gagnrýnislaust, sem mér finnst orka verulega tvímælis.“ Einhver hafi sparað sér vinnu við þýðingar „Þá förum við í hina hliðina sem klikkar mjög oft og það er þegar fólk gerir alþjóðlegar skoðanakannanir, að gæta þess ekki að þýðingar virki á milli landa. Þetta vekur upp spurningar um það hversu mikill peningur og vinna var lögð í að þýða spurningalistann þannig að merking spurningalistans hafi verið eins í öllum málum. Mér þykja hér sterkar vísbendingar um að eitthvað hafi farið úrskeiðis.“ Nefnir Hafsteinn sérstaklega sem dæmi þá fullyrðingu í rannsókninni að tæpur helmingur íslenskra kvenna og um sextíu prósent karla telji karlmennsku felast í því að leysa úr ágreiningi með ofbeldi. Þar sé munurinn á Íslandi og hinum Norðurlöndunum sláandi, sem séu saman með svipaðar mælingar. „Á þessu geta verið tvær skýringar, annars vegar sú að íslenska þjóðin sé með miklu íhaldssamari skoðanir eða að þýðingin sé vitlaus. Við vitum úr alþjóðlegum rannsóknum að íslensk viðhorf í jafnréttismálum eru mjög jákvæð og svipuð því sem sést á Norðurlöndunum. Eftir stendur því að hér eru sterkar vísbendingar um að einhver hafi sparað sér vinnu við þýðingar. “ Vinnubrögð sem þekkist ekki í íslenskum rannsóknum Hvaða áhrif heldurðu að svona geti haft á viðhorf fólks til rannsókna í félagsvísindum? Þetta hlýtur að vera bagalegt? „Það er það sannarlega. Og ég hef satt að segja svolitlar áhyggjur, mér finnst óheppilegt að þarna sé Norræna ráðherranefndin skrifuð fyrir einhverju sem virðist ekki vera vel unnið,“ segir Hafsteinn. Hann segir það hlutverk félagsvísindamanna að stíga upp á slíkum augnablikum og benda á þegar eitthvað sé ekki vel unnið. „Og það er það sem við erum að gera núna. Því miður er auðveldara að birta áhugaverðar niðurstöður frekar en að leggja til vinnuna sem felst í því að gera þetta vel. Sem betur fer eru langflestar rannsóknir á Íslandi mjög vel unnar og til þess fallnar að auka þekkingu okkar á samfélaginu. Það getur verið erfitt að koma að utan og reyna að átta sig á íslensku samfélagi, en mér rennur blóðið til skyldunnar að segja eitthvað þegar ég tel að rannsóknir séu illa unnar því auðvitað vill maður stuðla að upplýstri umræðu um samfélagsleg málefni.“
Jafnréttismál Háskólar Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Sjá meira