Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. október 2026 11:19 Ambika og Hafdís féllust í faðma og grétu gleðitárum þegar þær hittust loksins. Indverska konan Ambika Sharma, sem ólst upp í SOS-barnaþorpi, hitti loksins Guðrúnu Hafdísi Karlsdóttur 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeldri hennar. Ambika ætlaði að koma til Íslands í fyrra en fékk ekki vegabréfsáritun. Tárin féllu í stríðum straumum þegar þær hittust í Hamraborginni í gær.
SOS barnaþorpin birtu í gær myndband af fagnaðarfundum kvennanna tveggja. „Það er komið að risastórri stund hjá okkur hjá SOS barnaþorpunum. Þið munið kannski eftir henni Ambiku sem var framan á síðasta blaði hjá okkur og hefur verið í fjölmiðlum hérna í fyrra,“ segir Hans Steinar Björnsson upplýsingafulltrúi SOS barnaþorpanna í myndbandinu. „Hún var að leita að styrktarforeldrinu sínu, henni Hafdísi, á Íslandi.“ Fjölmiðlar hérlendis fjölluðu um það sumarið 2025 þegar Ambika, sem ólst upp í barnaþorpinu í Greenfields á árunum 1993 til 2012, kom til landsins í leit að styrktarforeldri sínu sem hafði styrkt Ambiku og reglulega sent henni kort. Upplýsingar um styrktarforeldrið voru þó ekki lengur til staðar í tölvukerfi SOS barnaþorpanna og brugðu þau því á það ráð að auglýsa eftir henni. Ambika fann Hafdísi á endanum með hjálp samfélagsmiðla og áætlaði að koma til Íslands um mánaðamótin júní-júlí 2025. Hins vegar fékk hún ekki vegabréfsáritun til að komast inn í landið og þurfti því að bíða enn lengur eftir endurfundunum. „Hún var búin að taka sér frí frá vinnu og fá sumarfrí til að koma hingað. Þetta er hindrun sem seinkar endurfundum hennar og Hafdísar,” sagði Hans Steinar við fjölmiðla um málið á sínum tíma. Á endanum fékk Ambika þó loksins vegabréfsáritun og kom til landsins í vikunni, einu ári og þremur mánuðum eftir fyrri tilraunina. „Ambika er komin til landsins, hún er að koma hingað á eftir og Hafdís er mætt á svæðið,“ segir Hans í myndbandinu sem var tekið upp í höfuðstöðvum SOS barnaþorpana í Hamraborginni. View this post on Instagram A post shared by SOS Barnaþorpin (@sosbarnathorpin) „Ég bara alveg iða,“má heyra Hafdísi segja í myndbandinu. „Ég eiginlega trúi því ekki fyrr en ég sé hana.“ Því næst má sjá þegar Ambika rennur í hlað með eiginmanni sínum, greinilega nýbúin í verslunarleiðangri í Krónunni. „Þetta er mjög tilfinningarík stund fyrir mig núna. Guð minn góður,“ segir Ambika þegar hún röltir inn í höfuðstöðvarnar og mætir Hafdísi sem bíður með faðminn opinn. Síðan fallast þær í faðma og gráta báðar gleðitárum. Vel fór á með konunum tveimur. Ambika og Hafdís voru jafnframt til umfjöllunar í kvöldfréttum Rúv í gærkvöldi þar sem þær ræddu um endurfundina og samband sitt. „Ég er svo hamingjusöm að fá að hitta hana. Ég bjóst ekki við að fá að hitta hana í persónu og knúsa hana,“ sagði Ambika í viðtalinu. „Þú ert tengd manneskjunni sem skrifaði til þín, allur stuðningurinn skipti máli, og öll póstkortin og bréfin,“ sagði hún jafnframt. „Ég fer með póstkortin hvert sem ég fer. Ef ég fer á farfuglaheimili, eftir hjónaband, ég flyt ég með þau með mér hvert sem ég fer.“ Hafdís sagði jafnframt að henni liði eins og hún ætti smá í Ambiku. „Mér líður rosalega vel að hafa allavega gert það fyrir eitt barn, að koma því áfram veginn. Til þess var nú leikurinn gerður. En ég bjóst ekki við því að við yrðum svona nánar í gegnum bréfin,“ sagði Hafdís að lokum.
Tímamót Indland Börn og uppeldi Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Sjá meira