Erlent

Ætlar að borga fyrir um­deildar aug­lýsingar úr eigin sjóðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot úr einnig auglýsingunni.
Skjáskot úr einnig auglýsingunni.

Donald Trump segir að hann muni láta eigin pólitíska aðgerðanefnd, svokallaða Super PAC, greiða fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum á undanförnum vikum. Auglýsingarnar, sem þykja mjög pólitískar í aðdraganda þingkosninga, hafa verið fjármagnaðar af heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna en stofnunum ætti að vera óheimilt að gera slíkar auglýsingar.

Heimavarnaráðuneytið hefur varið meira en tíu milljónum dala af opinberu fé í auglýsingarnar en fyrstu auglýsingarnar voru birtar í síðasta mánuði. AP-fréttaveitan sagði frá því á dögunum að til stæði að verja tuttugu milljónum dala í þær fram að kosningum. Það samsvarar tæplega 2,5 milljörðum króna.

New York Times hefur sagt frá því að Trump hafi sjálfur skipað starfsmönnum sínum að fjármagna auglýsingarnar úr opinberum sjóðum.

Ein auglýsingin, sú fyrsta sem var birt, sýnir myndir af Trump sjálfum á meðan hann heyrist tala um að hann og bandamenn hans muni sigra kommúnista, sósíalista, djúpríkið og aðra meinta andstæðinga sem finna megi innan Bandaríkjanna.

Undir því má svo heyra kór syngja „Love me“ eða „elskið mig“.

Auglýsingin og aðrar svipaðar hafa birst í útsendingum margra bandarískra sjónvarpsstöðva.

Önnur auglýsinga var nákvæmlega eins og auglýsing framboðs Trumps frá forsetakosningunum 2024, þar sem Trump fordæmdi frekari meinta óvini sína.

Enn ein fjallaði svo um stríðið gegn Íran og innihélt ummæli Trumps og Petes Hegseth, varnarmálaráðherra.

Allar enduðu á skilaboðum um að þær hefðu verið kostaðar af ríkisstjórn Bandaríkjanna.

Ekki auglýsingar, heldur „upplýsingaherferð í almannaþágu“

Þetta hefur verið harðlega gagnrýnt af þingmönnum Demókrataflokksins en þingmenn Repúblikanaflokksins hafa í einhverjum tilfellum tekið undir gagnrýnina, þó þeir hafi að mestu orðað kvartanir sínar vandlega.

Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins sendu Markwayne Mullin, heimavarnaráðherra og fyrrverandi öldungadeildarþingmanni, í síðustu viku bréf þar sem þeir vísuðu til þess að áðurnefndar tuttugu milljónir hefðu samkvæmt fjárlögum átt að fara í öryggi á landamærum Bandaríkjanna.

„Við ættum ekki að þurfa að minna þig á að það að nota opinbera peninga til að framleiða eða birta pólitískar auglýsingar eins og þær sem hafa verið birtar á undanförnum dögum er ólöglegt og sláandi misnotkun á peningum skattgreiðenda.“

Þingmennirnir kölluðu eftir frekari upplýsingum um auglýsingarnar og peningana sem hefðu verið notaðir í þær.

Þá hafa einnig verið höfðuð dómsmál vegna auglýsinganna.

Talsmenn ráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar hafa staðhæft að ekki sé um pólitískar auglýsingar að ræða, heldur sé um að ræða upplýsingaherferð í almannaþágu.

Sjálfur hefur Trump haldið því fram að þetta séu auglýsingar fyrir Bandaríkin.

„Þið verðið að skilja. Ég er ekki að auglýsa frambjóðanda. Ég er ekki að auglýsa sjálfan mig, því ég er ekki í framboði. Ég er að auglýsa landið.“

Þegar blaðamaður gekk á hann í síðustu viku, sagðist Trump ætla að greiða sjálfur fyrir auglýsingar. Það myndi hann gera með glöðu geði, ef í ljós kæmi að hann væri að gera eitthvað rangt.

Sagði auglýsingarnar hefðbundnar

Trump lýsti því yfir á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, í kvöld að hann ætlaði nú að láta MAGA Inc, pólitíska aðgerðanefnd sína, greiða fyrir auglýsingarnar.

Það sagði hann að væri til komið vegna þess að „öfga-vinstrið“ væri miður sín yfir þessum jákvæðu auglýsingum fyrir Bandaríkin, eins og hann orðaði það, og sagði að slíkar auglýsingar væru hefðbundnar.

Færsla Trumps á Truth Social.

Trump hefur í gegnum MAGA Inc safnað fúlgum fjár. Aðgerðanefndin átti í aðdraganda þingkosninganna sem fara fram í næsta mánuði um fjögur hundruð milljónir dala þegar mest var.

Sjá einnig: Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps

Staða Repúblikana þykir slæm víða um Bandaríkin og hefur það að miklu leyti verið rakið til mikilla óvinsælda Donalds Trump, forseta. Þingkosningar munu fara fram í byrjun nóvember en baráttan snýst um hverjir munu stjórna báðum deildum þings næstu tvö árin.

Repúblikanar eru byrjaðir að verja gífurlegum peningum til að reyna að halda meirihluta sínum í öldungadeildinni en fjölmiðlar vestanhafs segja að miðað við hvar verið er að verja þessum peningum, sé útlit fyrir að leiðtogar flokksins hafi gefið meirihluta þeirra í fulltrúadeildinni upp á bátinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×