Innlent

Við­búnaður á slóðum Vítisengla

Agnar Már Másson skrifar
Fjöldi lögreglumanna var á vettvangi í Auðbrekku en Vítisenglar héldu þar veislu í kvöld.
Fjöldi lögreglumanna var á vettvangi í Auðbrekku en Vítisenglar héldu þar veislu í kvöld. Vísir/Viktor Freyr

Lögreglan hefur verið með mikinn viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi í kvöld. Í götunni stendur yfir veisla á vegum mótorhjólaklúbbanna Vítisengla og Red Devils.

Ekki hefur náðst í lögreglu vegna aðgerðarinnar en lögreglumenn hafa ítrekað áður staðið í aðgerðum á svæðinu vegna samkoma Vítisengla.

Á plakati sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum er einmitt boðað til veislu í húsakynnum Vítisengla að Auðbrekku 1 en þar segir að veislan sé á vegum Vítisengla auk annars mótorhjólaklúbbs að nafni Red Devils.

Lögreglan við aðgerðir í Auðbrekku.Vísir/Vilhelm

Sjónarvottur lýsti því að hafa séð fjölda lögreglubíla á vettvangi, þar af einn með viðbragðsljósin kveikt.

Vítisenglar eða Hells Angels, eins og þeir eru þekktir fyrir utan landsteinana, eru víðast hvar skilgreind sem glæpasamtök. 

Plakat þar sem boðað er til veislu hjá Vítisenglum í kvöld.

Sem fyrr segir hefur lögreglan áður ráðist í aðgerðir á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Lögregla var með mikinn viðbúnað á svæðinu á sama tíma og klúbburinn hélt upp á fimmtán ára afmæli sitt í maí á þessu ári. 

Í september 2025 voru þrír handteknir á samkomu þeirra og svo var aftur lokað fyrir umferð á svæðinu þegar þeir héldu aðra samkomu tveimur vikum síðar.

Enn voru tveir lögreglumílar á vettvangi klukkan 23.30 í kvöld.Vísir/Viktor Freyr




Fleiri fréttir

Sjá meira


×