Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Freyja Þórisdóttir skrifar 4. október 2026 15:41 Sigríður Dóra Magnúsdóttir er forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en hún segir pestir sem þessar vera þess eðlis að það geti verið betra að reyna öll húsráð áður en leitað er annað. Aðsend/Vísir/Sigurjón Hið árlega pestatímabil hefur leikið fjölda landsmanna grátt en Læknavaktin tekur á móti hundruðum skjólstæðinga á hverjum degi þessa stundina. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir mikilvægt að fólk láti reyna á öll húsráð, slökun og annað sem því býðst heima fyrir áður en það geri sér ferð á heilsugæslur eða Læknavaktina. Það séu bæði kvef- og magapestir að ganga fólks á milli. „
Það er búið að vera mjög mikil veikindi og kannski óvenju snemma, fyrr á ferðinni heldur en við höfum oft séð,“ segir Stefán Ari Guðmundsson, framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar, í samtali við fréttastofu. Mörg hundruð skjólstæðingar Síðustu tvær til þrjár vikurnar hafi verið mikil aukning og oft á bilinu fjögur til fimm hundruð manns sem mæti á Læknavaktina dag hvern. Þó geti læknar auðvitað orðið veikir rétt eins og aðrir og því hafi verið erfiðara en oft áður að manna vaktir. Læknavaktin í Austurveri sinnir vaktþjónustu þar sem aðeins sérfræðingar í heimilislækningum veita læknisþjónustu.Vísir/Vilhelm „Við erum með sem sagt fyrri og seinni vakt og það vantar í rauninni lækna á báðar vaktir vegna veikinda,“ segir Stefán. Það séu yfirleitt um fimm til sex læknar á hverri vakt. „En þegar kannski koma svona hópar þá bara er bið. Það eru örugglega hátt í sextíu manns að bíða núna,“ segir hann og bætir við að „tíminn sem tekur að taka hvert og eitt tilfelli getur verið mjög mismunandi og það er ómögulegt að segja þegar fólk er að spyrja: Hvað er biðin löng? Við bara höfum ekki hugmynd um það.“ Flensan skæða sé árleg og geisi upp um þetta leyti, enda sé fólk að hittast í skólum og vinnu eftir sumarfrí og meiri samvera þýði meiri líkur á smiti. „Það er viðbótarmönnun þegar svona kúfur er kominn og við bætum inn vaktalínum en við náum ekki að manna allt af því að það eru veikindi,“ segir hann en Læknavaktin er opin frá 9:00 til 22:00 um helgar og 17:00 til 22:00 virka daga. Mikill hasar víða Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir sömu sögu og Stefán: það sé rosalega mikið að gera á heilsugæslunum. „Þannig að það er um að gera að fólk rjúki ekki af stað, til dæmis á Læknavaktina, heldur lesi sér til og hafi samband við 1700 og svona noti það rétt því það er bara kominn mjög mikill hasar og náttúrulega pest víða,“ segir hún og bætir við að það séu nokkrar pestir í umferð. Kvefpestir og magakveisur séu margar hverjar þannig að besta ráðið sé að vera einfaldlega heima hjá sér í rólegheitum. „Það eru fleiri en ein pest í gangi þannig að mest svona ýmsar útgáfur af kvefpest en það er líka magapest og ég hef líka heyrt um hand-, fót- og munnsjúkdóm þannig að það er alls konar í gangi,“ segir hún en hún hafi ekki heyrt af fleiri Nóróveirusmitum en þessu eina á skrifstofu Reykjavíkurborgar í vikunni. Annars sé lykilatriði þegar pestatímabilið leiki landsmenn grátt að reyna fyrst á öll húsráð áður en haldið sé á heilsugæslurnar eða Læknavaktina. „Ég myndi ráðleggja fólki að anda bara rólega og láta reyna á þessi húsráð sem eru, þau gera gagn og sýklalyf eru ekki notuð í þessum tilvikum,“ segir hún og ítrekar „ég mæli bara með tei og panodil og slökun.“
Heilsugæsla Heilbrigðismál Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum Sjá meira