Handbolti

Fyrsti sigur læri­sveina Arnórs kom í spennutrylli

Aron Guðmundsson skrifar
Arnór Þór fagnar einu marka sinna manna í síðasta leik gegn Balingen
Arnór Þór fagnar einu marka sinna manna í síðasta leik gegn Balingen Mynd: Bergischer

Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í liði Bergischer unnu í kvöld sigur gegn Balingen í miklum spennutrylli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Lokatölur 29-28 Bergischer í vil. Fyrsti sigur liðsins í deildinni á tímabilinu.

Það var Balingen sem náði mest fimm marka forystu í fyrri hálfleik og forystunni héldu þeir alveg þar til um miðbik seinni hálfleiks. 

Þá voru lærisveinar Arnórs Þórs búnir að finna taktinn og úr varð mjög spennandi leikur þar sem að lengi vel skildi aðeins eitt mark liðin að. 

Þegar að innan við þrjár mínútur efir lifðu leiks kom Tom Bergner, Bergischer tveimur mörkum yfir í stöðuna 29-27. 

Ballingen minnkaði muninn niður í eitt mark en komst ekki nær. 

Eins marks sigur, 29-28, Bergischer varð raunin. Mikilvægur sigur fyrir Arnór Þór og hans menn. Sá fyrsti í deildinni á þessu tímabili.

Bergischer er enn á botni þýsku úrvalsdeildarinnar, nú með tvo stig, en nóg er eftir af mótinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×