Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. október 2026 09:03 Oddur Máni starfar sem læknir. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Oddur Máni Malmberg er einn þeirra.
Oddur Máni er 34 ára landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Oddur Máni hefur mest farið 31 hring en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég hef verið að hlaupa með pásum frá því um tvítugt. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Ég var forvitinn hvað ég gæti hlaupið lengi. Hvað hefur þú tekið oft þátt? Fimm sinnum minnir mig. Hvern er best að spjalla við í hringnum? Þau eru öll ágæt í liðinu. En almennt í bakgarðshlaupum líður mér best með Hansen-tvíburunum, sem eru því miður ekki í liðinu. Svo verð ég líka að nefna Andra Guðmunds, bakgarðshetju, sem er stútfullur af fróðleik og góðum ráðum. Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Appelsínur, ísnálar og Dura kolvetnadrykk. Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Ég veit ekki alveg hvaða næringu aðrir í liðinu eru með, fyrir utan Frikka — og mér líst ekkert sérstaklega vel á soðnu kartöflurnar hans. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Horfi á fótbolta og æfi golfsveifluna. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Óákveðið, bara einn í einu. Þarf þó að mæta í vinnu á miðvikudegi, þannig ég hætti í síðasta lagi stuttu áður. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Ekkert sem mér dettur í hug. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? Öskjuhlíð. Tengist þó frekar því að bakgarðurinn í Öskjuhlíð er hlaupin að vori til frekar en brautin sjálf. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Frikki, hann á fullt inni! Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Er ágætur að hlaupa. Mér þykir frekar leiðinlegt að hlaupa á bakgarðshraða sem veldur því að ég á það til að hlaupa hraðar en skynsamlegt er. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Þegar ég þarf extra hvatningu hringi ég í eldri bróður minn, sem minnir mig á sinn bróðurlega hátt á að hætta að vera aumur. Orðalagið hans er þó ekki prenthæft. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Það eru allir að hvetja alla. Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Við erum KR. Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Áhugahlaupari, atvinnulæknir. Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Oddur er menntaður læknir. Skynsamleg notkun verkjalyfja, heitt bað og hamborgari. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Mari eða Tommi. Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? Verðandi heimsmeistarar 2026
Bakgarðshlaup Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og Alonso mætir á Anfield Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira