Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2026 10:37 Eysteinn Pétur Lárusson segir að réttar medalíur verði sendar á KR- og HK-stelpur í dag. Medalíurnar sem þær fengu í gær voru merktar 3. flokki karla. Samsett/Twitter/Vísir Fimmtán og sextán ára stelpur úr KR og HK fengu medalíur merktar strákum eftir úrslitaleik sinn í Vesturbænum í gær, í Íslandsmóti B-liða í 3. flokki. Framkvæmdastjóri KSÍ biður leikmenn og félögin afsökunar en þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem mistök verða í verðlaunaafhendingu hjá íslenskum fótboltastelpum.
KR-stelpur unnu HK í vítaspyrnukeppni eftir 2-2 jafntefli í háspennuleik á Meistaravöllum síðdegis í gær. Eftir leikinn tók við verðlaunaafhending með verðlaunum frá KSÍ en þá kom fljótlega í ljós að bæði gullmedalíur KR-inga og silfurmedalíur HK-inga voru merktar fyrir 3. flokk karla en ekki kvenna. Bikarinn var þó rétt merktur. Frábærum úrslitaleik lokið þar sem leikar enduðu 2-2 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu.Eftir vítaspyrnukeppni unnu KR stelpur og urðu Íslandsmeistarar í B keppni þriðja flokks kvenna. Eftir grátur og almennt svekkelsi við að tapa eftir vítaspyrnukeppni fengu… pic.twitter.com/F3PJrkM3c0— Max Koala (@Maggihodd) September 29, 2026 Innan við tvær vikur eru síðan KSÍ gleymdi að sjá til þess að verðlaunagripurinn væri á staðnum í Kópavogi þegar FH varð Íslandsmeistari í 2. flokki kvenna með sigri á Breiðabliki. KSÍ brást við mistökunum í Kópavogi með því að Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og Eysteinn framkvæmdastjóri mættu og afhentu FH-stelpum verðlaun sín í hálfleik á leik FH og Stjörnunnar í Bestu deildinni, tveimur dögum eftir að þær unnu titilinn. Eysteinn segir að sömuleiðis verði brugðist skjótt við hinum leiðu mistökum í Vesturbænum í gær. „Það voru rangir verðlaunapeningar teknir þegar farið var með þá í Vesturbæinn í gær en réttur bikar var tekinn. Réttum verðlaunapeningum verður komið á bæði félög í dag,“ sagði Eysteinn við Vísi í morgun. Eysteinn tekur undir að það sé vissulega afar leitt og bagalegt fyrir sambandið að svona mistök hafi nú bitnað á fótboltastelpum tvisvar á skömmum tíma. „Jú, það er alls ekki gott og erum við miður okkar yfir því. Í tilfellinu í gær voru rangir verðlaunapeningar teknir og þurfum við að skoða verkferlana hjá okkur frá A-Ö en þetta eru svakalega margar verðlaunaafhendingar þessa dagana. Það breytir því ekki að við þurfum að gera betur og munum við meðal annars reyna að fá félögin í lið með okkur í því hvernig við stöndum að þessum verðlaunaafhendingum í framtíðinni. Við munum strax á morgun ræða þessi mál meðal annars á yfirþjálfarafundi félaganna. En að því sögðu vil ég fyrir hönd KSÍ koma á framfæri afsökunarbeiðni til félaganna og sérstaklega leikmannanna sem þessi leiðu mistök bitnuðu á í gær.“
KR HK Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Sjá meira