Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Lovísa Arnardóttir skrifar 30. september 2026 06:33 Lögreglan er með málið til rannsóknar. Vísir/EPA Einn af mönnunum fimm sem handteknir voru nálægt RAF Fairford-herstöðinni í Bretlandi snemma á sunnudagsmorgun hringdi sjálfur í neyðarlínuna um klukkustund áður en bóndakonan hringdi vegna mannanna. Þetta er samkvæmt heimildum BBC.
Bóndakonan gerði lögreglunni viðvart um „þrjú grunsamleg ökutæki“ í Whelford, þorpi sem liggur beint austur af flugstöðinni. Hún sagði við BBC að það hefði verið „hrein heppni“ að hún hefði komið auga á þá eftir að hafa komið heim og séð veginn lokaðan og „stóran hóp manna með hettur og grímur“. „Ég tel að 999-símtalið mitt hafi komið í veg fyrir hvaða áform sem þeir höfðu,“ sagði hún. Viðbúnaður hefur verið við herstöðina síðustu daga vegna málsins. Vísir/EPA Sprengjusveit kom á staðinn skömmu síðar. Mennirnir fimm voru handteknir grunaðir um brot tengd sprengiefnum og síðar hryðjuverkabrot eftir að þeir sáust með þrjá sendiferðabíla nærri flugstöðinni. Nafn fyrirtækis vitlaust skrifað Búið var að merkja bílana tilteknu fyrirtæki en nafnið var vitlaust skrifað og rangur litur á merki fyrirtækisins. Þetta fyrirtæki flytur eldsneyti á bóndabæi í Bretlandi og hafði verið talið líklegt að tunnur af bensíni fyndust í bílnum. Það reyndist svo vera rétt. Í frétt BBC segir að búisy sé við því að lokunum nærri herstöðinni verði aflétt í dag en íbúar sem þurftu að rýma við aðgerðina hafa þó fengið að fara heim. Mennirnir fimm eru allir breskir ríkisborgarar á aldrinum 23 til 25 ára. Fjórir þeirra búa í Westminster og einn í Camden og leit á heimilum þeirra er nú lokið. US B-1 Lancer sprengjuflugvél á flugvelli herstöðvarinnar. Vísir/EPA Laurence Taylor, aðstoðarlögreglustjóri og yfirmaður hryðjuverkavarna, sagði í gær við fjölmiðla að viðbrögð lögreglunnar hefðu verið byggð á „ýmsum upplýsingum“ og að lausn mannanna gegn tryggingu væri „háð ströngum skilyrðum um ferðir þeirra og samskipti við aðra“ á meðan þeir væru enn til rannsóknar. „Öryggi almennings er í forgrunni við ákvarðanatöku okkar í rannsókninni og það var svo sannarlega raunin í gær,“ sagði hann á þriðjudag. Breski og bandaríski herinn hafa notað herstöðina og Bandaríkin síðast í hernaðaraðgerðum sínum í Íran. Undanfarna mánuði hafa bandarískar sprengjuflugvélar farið í loftið frá flugstöðinni til Mið-Austurlanda, eftir að Bretland samþykkti beiðni Bandaríkjanna um að nota hana fyrir varnarárásir á Íran. Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði blaðamönnum á þriðjudag að hann væri „vonsvikinn“ yfir því að mennirnir fimm hefðu verið látnir lausir gegn tryggingu. Rannsaka hvers kyns tengsl Taylor hefur sagt að rannsókn þeirra snúist að því að kanna hvort það séu einhver tengsl við erlend ríki í gegnum einstaklinga eða svokallaða umboðsmenn [e. Proxy]. Þá hafa sérstaklega verið nefnd tengsl við Íran vegna hernaðaraðgerða Bandaríkjanna en íranska sendiráðið í London hefur sagt að það „hafni alfarið og fordæmi harðlega“ „tilefnislausum og illgjörnum vangaveltum“ sem tengi Íran við nýjasta atvikið. Meðal þeirra sem lýstu yfir furðu sinni á því að mönnunum fimm hafi verið sleppt eru Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en sá síðarnefndi sagðist ekki átta sig á því af hverju Bretar slepptu mönnunum úr haldi. Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands kallaði ráðherra sína til fundar vegna atviksins. Um var að ræða svonefndan COBRA-fund, þar sem ráðherrar, háttsettir embættismenn og aðrir lykilaðilar hittast til að samræma viðbrögð við alvarlegum atburðum.
Bandaríkin Bretland Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands kallaði saman ráðherra sína til fundar í gær vegna alvarlegs atviks nærri bandarískri herstöð í landinu í fyrradag, þar sem fimm menn voru handteknir grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk og fyrir að brjóta lög um meðferð sprengiefna. 29. september 2026 06:33 Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian. 28. september 2026 06:45 Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mennina fimm sem handteknir voru nærri herflugstöðinni RAF Fairford í Englandi í nótt hafa ætlað að valda „miklum skaða“ á stöðinni. Hann segir bandarísk yfirvöld hafa haft mennina undir eftirliti um nokkurt skeið og fagnar samstarfi við Breta. 27. september 2026 16:19 Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. 27. september 2026 13:14 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands kallaði saman ráðherra sína til fundar í gær vegna alvarlegs atviks nærri bandarískri herstöð í landinu í fyrradag, þar sem fimm menn voru handteknir grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk og fyrir að brjóta lög um meðferð sprengiefna. 29. september 2026 06:33
Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian. 28. september 2026 06:45
Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mennina fimm sem handteknir voru nærri herflugstöðinni RAF Fairford í Englandi í nótt hafa ætlað að valda „miklum skaða“ á stöðinni. Hann segir bandarísk yfirvöld hafa haft mennina undir eftirliti um nokkurt skeið og fagnar samstarfi við Breta. 27. september 2026 16:19
Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. 27. september 2026 13:14