Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 30. september 2026 09:30 Nýútkomin skýrsla OECD, Education at a Glance 2026, setur íslenska menntakerfið í alþjóðlegt samhengi. Tilgangurinn er ekki að gefa einstökum kerfum einkunn heldur að skoða hvernig þau eru byggð upp, hvað þau kosta, hvernig mannafli þeirra nýtist og hvernig menntun þróast. Slíkur samanburður er mikilvægur því hann færir umræðuna frá tilfinningu yfir í staðreyndir. Við verjum miklu en hvernig? Ísland ver 5,2% af landsframleiðslu úr opinberum sjóðum til menntastofnana en meðaltal OECD er 4,0%. Útgjöld á hvern grunnskólanemanda eru um 20.900 Bandaríkjadalir hér á landi en 12.900 að meðaltali innan OECD. Á sama tíma fjölgaði grunnskólakennurum um 16% frá 2015 til 2024 en nemendum um 6%. Árleg kennsluskylda kennara er jafnframt 624 klukkustundir hér á landi en 770 að meðaltali innan OECD. Samt glímum við við kennaraskort. Þetta segir ekki að kennarar eigi að kenna meira. Það kallar hins vegar á umræðu um hvernig tími, mannafli og fjármunir nýtast innan skólanna. Þegar við verjum svo miklu til menntunar er eðlilegt að spyrja hvað kerfið kostar og hvað við fáum fyrir fjárfestinguna. Þversögnin í kerfinu Þetta verður enn áhugaverðara þegar staða kennara er skoðuð. Um 72% íslenskra kennara eru ánægð með starfskjör sín þegar launin eru undanskilin, en aðeins 19,3% eru ánægð með launin. Innan OECD er það hlutfall 38,7%. Við erum með dýrt skólakerfi, kennurum hefur fjölgað hraðar en nemendum og samt er viðvarandi kennaraskortur, mikil óánægja með laun og áhyggjur af námsárangri. Það er of einfalt að svara þeirri stöðu alltaf með meiri peningum og fleira fólki. Þegar meira fjármagn og meiri mannafli skila ekki sjálfkrafa betri niðurstöðum verðum við að þora að spyrja erfiðra spurninga; þurfum við að skoða skipulagið sjálft. Ekki enn eitt átakið, plís Samhliða þessu höfum við séð áhyggjuefni í námsárangri íslenskra barna. OECD-skýrslan skýrir ekki þann vanda en hún gefur okkur mikilvægt samhengi; lausnin felst ekki sjálfkrafa í því að setja meira fé eða fleiri starfsmenn inn í kerfið. Leiðin fram á við þarf frekar að byggjast á fáum og skýrum langtímamarkmiðum. Grunnfærni í lestri, lesskilningi og stærðfræði þarf að vera í forgrunni, kennarar þurfa góð námsgögn, öfluga starfsþróun og tíma til kennslu og undirbúnings. Jafnframt þarf að skoða hvernig sérfræðiþekking og mannafli skólanna nýtist. Sama gildir um starfsnámið. Um 22% fólks á aldrinum 55–64 ára hefur starfsmenntun á framhaldsskólastigi sem hæstu menntun en aðeins 12% fólks á aldrinum 25–34 ára. Á sama tíma kallar atvinnulífið eftir iðn- og tæknimenntuðu fólki. Þar þurfa orð og athafnir að fara saman. Langhlaup ekki skyndilausn Menntakerfi breytist ekki á einu kjörtímabili. Nemandi sem byrjar í fyrsta bekk í haust lýkur grunnskóla árið 2036. Þess vegna þurfum við langtímasýn sem lifir af ráðherra, ríkisstjórnir og einstök átaksverkefni. Setjum fá og skýr markmið. Mælum árangurinn. Styrkjum það sem virkar og hættum því sem virkar ekki. Og hættum þeirri áráttu að hvert nýtt vandamál kalli á nýtt átak, nýtt verkefni, nýtt slagorð og nýja stefnu. Umfram allt þurfum við að halda stefnunni nógu lengi til að sjá árangur. Ísland ver miklum fjármunum til menntunar og þannig á það að vera. En þá eigum við líka að spyrja hvernig við nýtum betur það sem við höfum; tíma, fólk og peninga. Menntun er langtímaverkefni. Árangurinn ræðst ekki af því hversu oft við byrjum upp á nýtt heldur hvort við höfum úthald til að halda áfram í rétta átt. Höfundur er kennari og skólastjórnandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun