Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir og Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifa 30. september 2026 09:02 Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma í gær að endurvekja íslenska forvarnarmódelið í Reykjavík. Með ákvörðuninni er mikilvægt skref stigið í þá átt að nýta gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni markvisst í grunnskólum borgarinnar, greina stöðuna í nærumhverfi barna og ungmenna og byggja upp sameiginlegar aðgerðir til lengri tíma. Með þessu stígur Reykjavík mikilvægt skref í því að setja velferð barna og ungmenna á dagskrá og þróa módelið áfram í takt við sífelldar og breytilegar áskoranir samtímans. Byggt á traustum grunni Íslenska forvarnarmódelið varð til fyrir nær þremur áratugum en smá saman hættum við að vinna markvisst eftir nálgun módelsins. Að einhverju leyti höfum við sem samfélag sofnað á verðinum. Nú er kominn tími til að taka upp þráðinn aftur og byggja á því sem við vitum að virkar og laga það að þeim veruleika sem börn og ungmenni búa við í dag. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Þessi setning hefur verið notuð svo oft að hún er orðin hálfgerð klisja en þegar kemur að því hvernig við sköpum gott samfélag fyrir börn og ungmenni á hún ennþá við. Börn alast ekki upp á einum stað. Þau alast upp heima, í skólanum, í frístund, íþróttum, félagsmiðstöðvum og öllu samfélaginu. Góðar aðstæður skapast þegar fullorðna fólkið á öllum þessum stöðum vinnur saman að því að búa til góða framtíð fyrir yngri kynslóðirnar. Bregðumst við flóknum veruleika Í dag alast börn og ungmenni upp í allt öðrum veruleika en fyrri kynslóðir. Tæknin er órjúfanlegur hluti af daglegu lífi, samfélagsmiðlar hafa breytt samskiptum og nýjar áskoranir tengjast til dæmis nikótíni, fjárhættuspilum, ofsaakstri og annarri áhættuhegðun. Við þurfum og ætlum að bregðast við áskorunum sem fylgja hraðari og flóknari veruleika. En grundvallarspurningin er alltaf sú sama: Hvernig búum við til samfélag þar sem börnum og ungmennum líður vel, gengur vel og fá tækifæri til að blómstra? Mælingar eru lykilatriði Góðar forvarnir byrja löngu áður en vandinn verður sýnilegur. Þess vegna skipta gögn máli. Með gögnum úr Íslensku æskulýðsrannsókninni getum við skilið stöðuna í nærumhverfi yngri kynslóðanna betur, greint bæði áhættu- og verndandi þætti og brugðist við þar sem þörfin er mest. Síðan þurfum við að mæla aftur og sjá hvort aðgerðirnar okkar skili árangri. Þannig byggjum við ákvarðanir á þekkingu, reynslu og gögnum en ekki bara tilfinningu. Fólkið breytir öllu En gögnin ein og sér breyta engu, það er fólkið sem breytir öllu. Kennarinn sem tekur eftir að nemandi er að dragast úr hópnum, foreldrið sem sér breytingu hjá barninu sínu, starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar sem þekkir ungmennin í hverfinu, þjálfarinn sem sér styrkleika hjá barni og náms- og starfsráðgjafinn sem hjálpar ungmenni að sjá framtíðarmöguleika sína. Púlsinn, félagsmiðstöðvar og Flotinn Reykjavík hefur nú þegar mikilvæg verkefni í höndunum. Við sjáum það í félagsmiðstöðvum, í Flotanum sem færir starfið út í nærumhverfi ungmenna og hjá Púlsinum þar sem unnið er þvert á sveitarfélög og stofnanir með börnum og ungmennum þegar ofbeldishegðun er til staðar. Þetta eru ólík verkefni sem eiga það sameiginlegt að byggja á tengslum og því að ná til barna áður en vandinn verður stærri. Áður en vandamál verður vandamál Þetta er líka ástæðan fyrir því að við þurfum að hætta að hugsa um forvarnir sem viðbrögð við vandamálum. Forvarnir eru langtímaverkefni sem þarf stöðugt að vinna að. Hvernig getum við styrkt tengsl barna við skólann, frístundina og samfélagið? Hvernig getum við stutt foreldra betur? Hvernig tryggjum við að fullorðna fólkið í nærumhverfi barna þekki þau og taki eftir þegar eitthvað breytist? Það besta sem við getum gert Við í Viðreisn erum stolt af því að vera í borgarstjórn sem ætlar sér að endurreisa íslenska forvarnarmódelið í Reykjavík og skuldbinda okkur um leið til þess að hafa vellíðan barna og ungmenna í forgangi. Þegar öllu er á botninn hvolft er það líklegast það besta sem við getum gert - að setja fókusinn á að börnum og ungmennum í Reykjavík líði vel og gangi vel. Höfundar eru oddviti Viðreisnar í borgarstjórn og náms- og starfsráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Reykjavík Börn og uppeldi Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar