Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Smári Jökull Jónsson skrifar 29. september 2026 10:58 NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu. Vísir/Getty Öllum starfsmönnum Netapp á Íslandi hefur verið sagt upp en Vísir greindi frá því upphafi mánaðarins að starfsemi fyrirtækisins hér á landi væri í uppnámi og óvissa um störf. Sjötíu og fimm starfsmenn störfuðu á skrifstofu Netapp á Íslandi. Í samtali við Vísi staðfesti Hrönn Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Netapp á Íslandi, að búið væri að segja starfsfólki upp en vísaði að öðru leyti á almannatengsladeild fyrirtækisins. Fréttastofa hefur sent fyrirspurn á fyrirtækið um málið. Hefur þú frétt af uppsögnum í aðdraganda mánaðamóta? Sendu okkur fréttaskot hér. Hægt er að senda nafnlaust. NetApp á Íslandi er dótturfélag NetApp BV í Hollandi sem aftur er dótturfélag NetApp í Bandaríkjunum. Hagnaður NetApp á Íslandi nam rúmum 600 milljónum króna og eigið fé tæpum 1,9 milljörðum í lok apríl í fyrra. Fá uppsagnarfrest greiddan auk sérstakrar greiðslu Viðræður um starfslok hafa staðið yfir síðustu vikurnar eftir að tilkynnt var um að starfsemin hér á landi yrði lögð niður. Völdu starfsmenn sér fulltrúa í samninganefnd þar sem samið var um ákvæði starfslokasamninga. Samkvæmt heimildum Vísis felur starfslokasamningurinn í sér þriggja mánaða uppsagnarfrest auk sérstakrar starfslokagreiðslu. Þá var samið við einhverja starfsmenn um að vinna áfram fyrir fyrirtækið í ákveðinn tíma við yfirfærslu verkefna. Einnig stóð starfsmönnum til boða að flytjast til Írlands eða Bandaríkjanna og starfa áfram fyrir Netapp þar en voru fáir ef einhverjir sem þáðu það boð. Starfsemi íslenska félagsins fólst í að rannsaka, þróa og markaðssetja hugbúnað fyrir NetApp eins og Azure NetApp Files og Google Cloud NetApp Volumes. Vinnumarkaður Tækni Bandaríkin Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sjá meira
Í samtali við Vísi staðfesti Hrönn Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Netapp á Íslandi, að búið væri að segja starfsfólki upp en vísaði að öðru leyti á almannatengsladeild fyrirtækisins. Fréttastofa hefur sent fyrirspurn á fyrirtækið um málið. Hefur þú frétt af uppsögnum í aðdraganda mánaðamóta? Sendu okkur fréttaskot hér. Hægt er að senda nafnlaust. NetApp á Íslandi er dótturfélag NetApp BV í Hollandi sem aftur er dótturfélag NetApp í Bandaríkjunum. Hagnaður NetApp á Íslandi nam rúmum 600 milljónum króna og eigið fé tæpum 1,9 milljörðum í lok apríl í fyrra. Fá uppsagnarfrest greiddan auk sérstakrar greiðslu Viðræður um starfslok hafa staðið yfir síðustu vikurnar eftir að tilkynnt var um að starfsemin hér á landi yrði lögð niður. Völdu starfsmenn sér fulltrúa í samninganefnd þar sem samið var um ákvæði starfslokasamninga. Samkvæmt heimildum Vísis felur starfslokasamningurinn í sér þriggja mánaða uppsagnarfrest auk sérstakrar starfslokagreiðslu. Þá var samið við einhverja starfsmenn um að vinna áfram fyrir fyrirtækið í ákveðinn tíma við yfirfærslu verkefna. Einnig stóð starfsmönnum til boða að flytjast til Írlands eða Bandaríkjanna og starfa áfram fyrir Netapp þar en voru fáir ef einhverjir sem þáðu það boð. Starfsemi íslenska félagsins fólst í að rannsaka, þróa og markaðssetja hugbúnað fyrir NetApp eins og Azure NetApp Files og Google Cloud NetApp Volumes.
Hefur þú frétt af uppsögnum í aðdraganda mánaðamóta? Sendu okkur fréttaskot hér. Hægt er að senda nafnlaust.
Vinnumarkaður Tækni Bandaríkin Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sjá meira