Handbolti

Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýska­landi

Aron Guðmundsson skrifar
TVB Stuttgart - HC Erlangen 18 May 2025, Baden-Württemberg, Stuttgart: Handball: 1st Bundesliga, men, 2024/2025 season, TVB Stuttgart - HC Erlangen, Porsche Arena. Erlangen's Viggó Kristjánsson celebrates. Photo: Tom Weller/dpa (Photo by Tom Weller/picture alliance via Getty Images)

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Viggó Kristjánsson leikmaður Erlangen, skoraði tvö mörk í sigri liðsins gegn Eisenach í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 28-19 sigur Erlangen.

Um þriðja sigurleik Erlangen í röð í deildinni var að ræða, þann fjórða ef þýski bikarinn er meðtalinn, og lyftir liðið sér upp í 8. sæti deildarinnar og er þar með jafnmörg stig og lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach. 

Viggó hefur verið að koma sér í sífellt betra leikform eftir að hafa glímt við meiðsli en Erlangen hefur nú unnið þrjá af fyrstu sex leikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni, gert eitt jafntefli og tapað tveimur leikjum. 

Fleiri fréttir

Sjá meira

×