Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Samúel Karl Ólason skrifar 28. september 2026 16:38 Úkraínskir hermenn á gangi nærri bænum Druzhkivka í Dónetsk-héraði. AP/Iryna Rybakova, 93. vélvædda stórfylki úkraínska hersins. Úkraínskir hermenn hafa rekið Rússa á brott frá meira landsvæði í norðanverðu Dónetsk-héraði, þar sem Úkraínumenn hafa staðið í gagnsókn gegn Rússum um nokkurt skeið. Sókninni er ætlað að gera Rússum erfiðara að leggja undir sig „virkjabeltið“ svokallaða í Dónetsk og þar með restina af Donbas-svæðinu.
Herforinginn Andriy Biletsky, sem stýrir þriðju stórdeild (corps) úkraínska hersins og heldur utan um varnir Úkraínumanna á stórum hluta víglínunnar í austurhluta landsins, lýsti því yfir í dag að í heildina hefðu Úkraínumenn tekið um 176 ferkílómetra aftur af Rússum í aðgerðinni sem ber nafnið „Vivaldi“. Úkraínumenn halda enn um fimmtungi Dónetsk-héraðs. Það svæði inniheldur nokkrar borgir sem búið er að víggirða mjög. Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti. Helstu borgirnar í virkisbeltinu eru Kostíantínívka, Kramatorsk og Slóvíansk. Vivaldi-aðgerðin hefur í einföldu máli sagt beinst gegn tilraunum Rússa til að umkringja virkisbeltið úr norðri og þannig reyna að komast hjá mannskæðum átökum um borgirnar þar. Skjáskot af vef DeepState, úkraínskra manna sem vakta víglínuna í Úkraínu. Bláa svæðið er það sem Úkraínumenn hafa frelsað af Rússum í Vivaldi-gagnsókninni.DeepState Biletsky segir í yfirlýsingu sem birt var í dag að Úkraínumönnum hafi svo gott sem tekist að gera út af við drónasveitir Rússa á svæðinu og þannig gert Rússum erfiðara fyrir að hafa yfirsýn yfir hvað væri að gerast. Þá hafi Úkraínumenn gabbað stjórnendur Rússa á svæðinu, sem hafi sent liðsauka á rangan stað og raunveruleg sókn Úkraínumanna hafi komið þeim á óvart. Biletsky segir um tvö þúsund Rússa hafa verið fellda og rúmlega 250 hafa verið handsamaða í þessum þriðja lið Vivaldi. Í heildina halda Úkraínumenn því fram að fimm þúsund rússneskir hermenn hafi fallið síðan Vivaldi hófst. Meðfylgjandi myndband á að varpa ljósi á Vivaldi og hvernig aðgerðin fór fram en þar má sjá myndefni af víglínunni í sambland við gervigreindarmyndbönd. Чим обернувся обманний маневр у третьому сезоні «Вівальді»?Трійка знищила точки зльоту дронів елітного російського підрозділу «Рубікон» — їх зняли з напрямку. Вперше роботизовані БТР-60 підірвали найскладніші укріплення ворога. Штурмовики прорвали його найміцніші вузли оборони.… pic.twitter.com/5mwIHtyPKs— Третій армійський корпус (@ab3army) September 28, 2026 Samhliða hægagangi rússneskra hermanna á víglínunni í Úkraínu hafa Rússar gert umfangsmeiri árásir á borgir og bæi Úkraínu á undanförnum mánuðum. Skortur á flugskeytum í loftvarnarkerfi og nýjungar Rússa með þotuknúna sjálfsprengidróna hafa gert Úkraínumönnum erfiðara að verjast árásum Rússa. Úkraínumenn hafa einnig verið að auka árásir sínar í Rússlandi og þá sérstaklega gegn olíuframleiðsluinnviðum. Sala olíuafurða er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins. Sjá einnig: Veturinn verði Rússum erfiður Í dag gerðu Rússar árásir á Kænugarð. Meðal annars beindust þær að skrifstofuhúsnæði, vöruskemmu fyrir matvæli og gegn Vísindastofnun Úkraínu. Rescue efforts continue in the center of Kyiv, after Russians targeted the Academy of Sciences.At least one woman is dead and several wounded as rescuers search for survivors. pic.twitter.com/pNQngpWWg9— SPRAVDI — Stratcom Centre (@StratcomCentre) September 28, 2026 Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, sagði við blaðamenn í Rússlandi í morgun að Úkraínumenn væru að gjalda fyrir árásir þeirra í Rússlandi að undanförnu. „Auðvitað, forsetinn talaði einnig um þetta. Úkraína mun gjalda fyrir þær aðgerðir sem áttu sér stað á undanförnum mánuðum. Það er að gerast núna.“ Þá sagði Peskóv að hin sértæka hernaðaraðgerð, eins og Rússar kalla innrásina stundum, gengi áfram. Rússum væri nauðsynlegt að tryggja öryggi þeirra.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Tengdar fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna. 28. september 2026 10:00 Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 25. september 2026 10:29 Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Umfangsmiklar framkvæmdir á lóð Vladimírs Pútín í Sochi í suðurhluta Rússlands virðast vera að klárast. Lúxushús forsetans þar kallast Bocharov Ruchey og var jafnað við jörðu árið 2024 en nú virðist sem enn stærra hús hafi risið þar í staðinn. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu og unnin af manni sem tengist vini Pútíns persónulega. 25. september 2026 08:01 Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Rússar eru líklegir til að gefa í þegar kemur að skuggastríði þeirra gegn Evrópu og að framkvæma fleiri fjölþáttaárásir á komandi mánuðum. Tölvuárásir, drónaárásir og skemmdarverk eru meðal þess sem kemur til greina en einhvers konar innrás í NATO-ríki þykir mjög ólíkleg. 24. september 2026 11:40 Bað Trump um „vetrarpakka“ Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi. 23. september 2026 07:47 Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira
Vilja formlega afsökun frá Selenskí Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna. 28. september 2026 10:00
Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 25. september 2026 10:29
Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Umfangsmiklar framkvæmdir á lóð Vladimírs Pútín í Sochi í suðurhluta Rússlands virðast vera að klárast. Lúxushús forsetans þar kallast Bocharov Ruchey og var jafnað við jörðu árið 2024 en nú virðist sem enn stærra hús hafi risið þar í staðinn. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu og unnin af manni sem tengist vini Pútíns persónulega. 25. september 2026 08:01
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Rússar eru líklegir til að gefa í þegar kemur að skuggastríði þeirra gegn Evrópu og að framkvæma fleiri fjölþáttaárásir á komandi mánuðum. Tölvuárásir, drónaárásir og skemmdarverk eru meðal þess sem kemur til greina en einhvers konar innrás í NATO-ríki þykir mjög ólíkleg. 24. september 2026 11:40
Bað Trump um „vetrarpakka“ Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi. 23. september 2026 07:47