„Það er bara allt eða ekkert“ Árni Gísli Magnússon skrifar 25. september 2026 22:28 Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari Þór/KA. Guðmundur/Vísir „Liðin sem skoraði fyrsta markið vann leikinn. Mér fannst svona við frekar vera ofan á þangað til fyrsta markið kemur eftir einhverskonar klafs og það var of mikið högg fyrir okkur í fyrri hálfleik. Mér fannst við taka yfir og eiga allan seinni hálfleikinn og þrýsta og pressa án þess kannski að skapa nógu mikið og ná að jafna og þannig fór sem fór“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir sárt tap gegn Fram í næst síðustu umferð í neðri hluta Bestu deildar kvenna sem þýðir að Þór/KA getur enn fallið þrátt fyrir að vera fyrir ofan fallsvæðið fyrir lokaumferðina. „
Eins og ég segi, ég held að þetta hafi bara verið högg sem sjokkeraði okkur of mikið að fá mark og mörk á okkur en eins og ég segi við komum til baka og minnkum í 2-1 og eins og ég segi þrýstum og þrýstum í seinni en náum ekki inn maki sem að þýðir bara einfaldlega það að við erum að fara í enn einn úrslitaleikinn í lokaumferðinni“. Þór/KA er fyrir ofan fallsvæðið með 22 stig líkt og Víkingur en með mun hagstæðari markatölu. Valur er neðst með 21 stig og mætir Fram í lokaumferðinni sem bjargaði sér endanlega í kvöld. Þór/KA þarf því sigur í lokaleiknum til að tryggja sæti sitt eða jafntefli svo lengi sem Valur vinnur ekki sinn leik. „Ég ætla að vona að Fram geri það nú að þetta skipti Fram öllu máli en sú umferð horfir einfaldlega við mér þannig að við þurfum að fara á Víkingsvöll og ná í þrjú stig þar og þá verða allir glaðir.“ Úrslitaleikur framundan Þór/KA er ekki vant því að spila úrslitaleik um að halda sæti sínu í deildinni og því spurning hvernig liðið takist á við það verkefni. „Við náttúrulega vorum að tapa núna og ég hef ekki hitt liðið ennþá eftir leik þannig það á eftir að koma í ljós en við fáum núna viku til að undirbúa okkur fyrir hreinan úrslitaleik og það er bara hversu stórar við ætlum að vera og ég bara trúi ekki öðru en við mætum tvíefldar á Víkingsvöll og skiljum allt eftir þar til þess að vinna úrslitaleikinn.“ Leikurinn í kvöld var síðasti heimaleikur Þór/KA og var besta mæting sumarsins hingað til þar sem 322 áhorfendur létu sjá sig. Aðalsteinn er þakklátur fyrir stuðninginn og óskar eftir honum aftur í Víkinni. „Bara að sjálfsögðu, ekki spurning, en fyrst og fremst þakklát fyrir fólkið sem kom og kallaði og mætti á völlinn og það bara er ég gríðarlega ánægður með en því miður þá náðum við ekki að vinna leikinn og það svona súra bragð situr eftir en eins og ég segi við megum ekki fara langt niður núna, við megum ekki vorkenna okkur of mikið því það er bara ein vika eftir af móti hjá okkur og það er bara allt eða ekkert.“ Ósáttur með dómgæsluna Það voru mikil læti í leiknum og kölluðu leikmenn, þjálfarar sem og stuðningsmenn m.a. eftir fleiri vítaspyrnum. Aðalsteinn var því næst spurður út í dómgæsluna en Gunnar Oddur Hafliðason dæmdi leikinn. Er eitthvað sem þú ert ósáttur við í dómgæslunni? „Já“, sagði Aðalsteinn einfaldlega áður en hann var inntur eftir frekari svörum. Eitthvað sem þú vilt fara nánar út í fyrir okkur? „Nei, mér fannst bara allskonar leikstjórn og áherslur skrítnar en eflaust kunna þeir þetta allt saman og ekki við“, sagði Aðalsteinn að lokum.
Besta deild kvenna Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og Alonso mætir á Anfield Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Sjá meira