Svo slakir að stuðningsmenn tóku púlsinn Valur Páll Eiríksson skrifar 25. september 2026 10:30 Er ég á lífi? Stuðningsmenn Packers trúðu vart eigin augum yfir því hversu slakt lið þeirra var í nótt. Samsett/Getty/X Green Bay Packers riðu ekki feitum hesti í leik við Atlanta Falcons í NFL-deildinni vestan hafs í nótt.
Atlanta er talið meðal allra verri liða deildarinnar og hafa hreint ekki byrjað leiktíðina vel. Fálkarnir létu Packers hins vegar líta býsna illa út í nótt þar sem stjörnuleikmennirnir; hlauparinn Bijan Robinson og útherjinn Drake London sýndu allar sínar bestu hliðar. This Packers fan is going through it 😭(📺 Prime) pic.twitter.com/TSRPaCkTT6— SportsCenter (@SportsCenter) September 25, 2026 Stuðningsmenn Packers hafa fengið býsna góðu að venjast síðustu ár og áratugi þar sem liðið hefur yfirleitt verið í fremstu röð. Það virðist hreint ekki staðan í ár þar sem slakt Atlanta-lið vann 35-14 sigur í nótt, og það í Green Bay í Wisconsin. Kennarinn Valur Gunnarsson, sem er reglulega sérfræðingur í hlaðvarpinu Tíu Jardarnir, kjarnaði tilfinningar Green Bay stuðningsmanna ágætlega á samfélagsmiðlinum X: „Jæja. Kominn tími á NFL twitt. Þetta er lélegasta og leiðinlegasta Packers lið sem ég man eftir. Ég hata allt við það. Lifið heil,“ sagði Valur á X-inu. Jæja. Kominn tími á NFL twitt. Þetta er lélegasta og leiðinlegasta Packers lið sem ég man eftir. Ég hata allt við það. Lifið heil. #Gopackgo #NFLisland #tiujardarnir— Valur Gunnarsson (@valurgunn) September 25, 2026 NFL-deildin heldur áfram um helgina á Sýn Sport. Klukkan 17:00 á sunnudag er leikur Jacksonville Jaguars við New England Patriots á Sýn Sport og á sama tíma byrjar hið fræga Red Zone á Sýn Sport 3. Leikur San Francisco 49ers og Arizona Cardinals er þá klukkan 20:20 á Sýn Sport á sunnudag.
NFL Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sjá meira