Viðskipti innlent

Setja upp fjöru­tíu smá­hýsi í Þjórs­ár­dal

Lovísa Arnardóttir skrifar
Húsin eru byggð í Lettlandi og koma tilbúin.
Húsin eru byggð í Lettlandi og koma tilbúin. Aðsend

Bláa lónið og Byko hafa undirritað kaupsamning um kaup á 21 smáhýsi frá Byko til að setja upp í Þjórsárdal. Húsin eru liður í umfangsmikilli uppbyggingu Bláa lónsins í Þjórsárdal en fyrirhugað er að húsin verði 40 þegar framkvæmdum lýkur. 

Í maí voru undirritaðir sérleyfis- og lóðaleigusamningar á milli íslenska ríkisins og Bláa lónsins hf. um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu í Þjórsárdal. Auk starfseminnar í gestastofunni vinnur Bláa lónið að uppbyggingu hótels í Rauðukömbum, hótelsins Mountain Retreat sem verður að hluta grafið inni í fjallshlíð, og Fjallabaðanna.

Samkvæmt tilkynningunni eru smáhýsin framleidd í verksmiðju Byko í Lettlandi og koma fullbúin til landsins, það er með innréttingum, hreinlætisaðstöðu og öllum frágangi, og því tilbúin til uppsetningar. Þar kemur einnig fram að fjölbreytt úrval húsa verði í boði sem henti ólíkum þörfum, hvort sem um er að ræða pör, fjölskyldur eða þá sem kjósa einfaldari gistingu í húsum með kojum.

Marki upphaf starfseminnar í Þjórsárdal

„Við erum afar stolt og þakklát fyrir það traust sem okkur er sýnt með þátttöku okkar í þessari metnaðarfullu uppbyggingu í Þjórsárdal. Það er ánægjulegt að fá að leggja okkar af mörkum til svo spennandi verkefnis,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri Byko, í tilkynningunni.

„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á metnað og fagmennsku í Þjórsárdal og þess vegna lá beinast við að vinna með Byko. Húsin rísa í fallegu skóglendi við Sandá og styrkja vel fjölbreytt framboð gistingar í Þjórsárdal. Húsin munu marka upphaf starfsemi okkar í Þjórsárdal þegar þau opna sumarið 2027 þegar Fjallaböðin sjálf verða tilbúin 2028,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa lónsins, í tilkynningunni.

Í tilkynningu um smáhýsin segir að uppbygging Bláa lónsins í Þjórsárdal byggi á langtímasýn um aukið aðgengi að náttúru og sögu dalsins, með það að markmiði að gera hann að heildstæðum áfangastað, með virðingu fyrir sérstöðu svæðisins.

Í tilkynningu segir að uppbyggingin muni skapa fjölbreytta möguleika til afþreyingar í Þjórsárdal og styrkja stöðu svæðisins sem áfangastaðar fyrir innlenda jafnt sem erlenda ferðamenn, allt frá gistingu í hágæða smáhýsum til fjallabaða, gönguferða og fræðslu um sögu og náttúru dalsins. Þar sé hægt að skoða Stöng, Háafoss, Hjálparfoss og Gjánna.

Fjölbreytt úrval húsa verður í boði. Aðsend

„Verkefnið er jafnframt í takt við áherslur á að dreifa ferðamönnum víðar um landið og lengja ferðamannatímabilið, og fellur vel að metnaði Skeiða- og Gnúpverjahrepps og stjórnvalda um öfluga uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að Byko og Bláa lónið hafi um árabil verið öflugir samstarfsaðilar. Fyrirtækin hafi átt í samstarfi við Blue Lagoon Retreat hótelið í Svartsengi, sem og í Kerlingarfjöllum og við breytingar á Fontana við Laugarvatn.

Húsin eiga að falla að umhverfinu. Aðsend
Frá undirritun kaupsamningsins milli Bláa lónsins og BYKO um uppbyggingu í Þjórsárdal. Fremst eru Sigríður Margrét Oddsdóttir og Sigurður Brynjar Pálsson og frá vinstri í efri röð eru Magnús Orri Marínarson Schram, Baldur Helgi Snorrason, Hartmann Kárason, Jón Bjarni Jóhannsson, German Castillo og Eggert Kristinsson.Aðsend

Tengdar fréttir

Fjallaböðin á lokastigi hönnunar

Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum.

Hundruð íbúða byggðar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Hundruð íbúða verða byggðar í þéttbýliskjarnanum Árnesi í Skeiða og Gnúpverjahreppi í tengslum við virkjanir í sveitarfélaginu og opnun Fjallabaðanna og Gestastofu í Þjórsárdal. Þá er búið að ákveða að byggja íþróttahús í Árnesi og stækka skólann þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×