Fögnuður varð að fjöldamorði Samúel Karl Ólason skrifar 23. september 2026 10:28 Lögregluþjónar að störfum í Suður-Afríku. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/Kim Ludbrook Að minnsta kosti ellefu voru skotnir til bana þegar þrír árásarmenn ruddust inn í samkvæmi í Suður-Afríku í gærkvöldi. Þrír eru særðir en ólétt kona var meðal þeirra sem dóu í árásinni. Lögreglan segir að meðal hinna látnu séu menn sem voru þekktir af lögreglu og viðloðnir glæpastarfsemi.
Þrettán menn og ein kona, sem sögð er hafa verið ólétt, voru í samkvæmi í húsi í bæ sem heitir KwaMakhutha þegar þrír vopnaðir menn ruddust inn og hófu skothríð. Þeir kveiktu einnig í bíl áður en þeir flúðu af vettvangi. Tíu dóu á staðnum og fjórir voru fluttir á sjúkrahús, þar sem einn þeirra lét einnig lífið. Mannanna er nú leitað og hefur lögreglan hvatt alla sem gætu vitað eitthvað um fjöldamorðið til að hafa samband við lögregluna. Ríkisútvarp Suður-Afríku hefur eftir lögreglunni að tilefni árásarinnar liggi ekki fyrir en ekki sé hægt að útiloka deilur í undirheimum. Svæðið þar sem morðin voru framin er þekkt fyrir mikla fíkniefnaneyslu og glæpi. Sjá má umfjöllun SABC (ríkisútvarpsins) um málið í spilaranum hér að neðan. Yfirvöld í Suður-Afríku hafa lengi átt í basli með glæpi og ofbeldi en morðtíðni þar er meðal þeirra hæstu í heimi. BBC segir að um það bil sextíu manns séu myrtir á degi hverjum í landinu. Undanfarnar vikur hafa að minnsta kosti níu konur verið myrtar og líkum þeirra kastað í vegarkanta. Þau morð hafa aukið á áhyggjur fólks af glæpum í landinu. Skotárásir sem þessar, þar sem fjöldi fólks er myrtur, eru einnig nokkuð tíðar. Í júní dóu tólf og níu særðust í skotárás í úthverfi Jóhannesborgar. Þá voru níu skotnir til bana á krá í sömu borg í desember í fyrra.
Suður-Afríka Erlend sakamál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira