Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Andri Broddason skrifar 22. september 2026 21:11 Emelía Óskarsdóttir kom af varamannabekknum fyrir HB Køge gegn Arsenal í kvöld Mynd/HB Köge Arsenal tók á móti Danmerkurmeisturum HB Køge í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta. Arsenal endaði á að vinna dramatískan 1-0 sigur í uppbótartíma en á sama tíma vann Benfica Juventus 2-1 og Real Madrid og PSG gerðu 1-1 jafntefli.
Emelía Óskarsdóttir byrjaði á bekknum hjá HB Køge en Arsenal virtist hafa náð forystu leiksins strax á þrettándu mínútu. Chloe Kelly skoraði eftir fyrirgjöf frá Kyra Coone-Cross. Myndbandsdómarar fóru yfir markið og sáu að Stina Blackstenius var rangstæð og fyrir Alberte Vingum í marki HB Køge og var því markið dæmt af. Þegar leið á leikinn byrjaði HB Køge að ná meiri stjórn á leiknum frá Arsenal og fengu bæði lið fín færi en markalaust var í hálfleik. Þegar leið á seinni hálfleikinn byrjaði Arsenal að sækja meira og HB Køge byrjaði að leita að svörum til þess að bregðast við því. Emelía kom inn á völlinn á 72. mínútu til að fá ferskar lappir hjá danska liðinu. Bæði lið fengu færi en leikurinn virtist vera að enda í markalausu jafntefli þegar staðan var enn 0-0 í uppbótartíma. View this post on Instagram A post shared by HB Køge Women (@hbkogewomen) Á 92. mínútu er brotið á varamanni Arsenal, Selina Cerci, inni í vítateig HB Køge og dæmd vítaspyrna. Mariona Caldentey fór á punktinn og skoraði þrátt fyrir að Vingum hafi skutlað sér í rétt horn. Þetta reyndist síðasta atvik leiksins og tapaði HB Køge svekkjandi fyrir Arsenal. Norðmaðurinn hetjan á Ítalíu Á sama tíma tók Juventus á móti Benfica og var hin norska Marit Lund hetja Benfica. Hún kom gestunum yfir á 40. mínútu með góðu marki og hún var svo aftur á ferðinni á 61. mínútu þegar Benfica fékk vítaspyrnu. Hún fór á punktinn og skoraði örugglega. Juventus var hættulegra lið en Benfica stóran hluta af leiknum og náði að minnka muninn á 86. mínútu með marki frá Alba Redondo. Mark Juventus kom þó of seint og náði liðið ekki að bæta við öðru marki og þurfti að sætta sig við 2-1 tap á heimavelli. Stál í stál Stórleikur umferðarinnar var þegar Real Madrid tók á móti PSG og vantaði ekki dramatíkina í þeim leik. Felicia Schröder kom Real Madrid yfir á annarri mínútu leiksins með vel útfærðri sókn. Leikurinn var gríðarlega jafn og fengu bæði lið sinn skammt af færum en um miðjan seinni hálfleik fékk PSG vítaspyrnu. Sakina Karchaoui tók vítaspyrnuna fyrir PSG og skoraði örugglega og endaði leikurinn í 1-1 jafntefli. Það verður að teljast sanngjarnt þar sem liðin héldu jafn mikið í boltann og skutu jafn mörgum skotum á markið.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Íslendingar erlendis Arsenal FC Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Union St.Gilloise - Real Sociedad | Orri mættur til Belgíu Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Sjá meira