Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Samúel Karl Ólason skrifar 22. september 2026 14:13 Donald Trump þegar hann gekk inn í höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna fyrr í dag. AP/Stefan Jeremiah Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Þar er hann meðal annars talinn ætla að státa sig af afrekum sínum og leggja línurnar fyrir næsta árið.
Mikil ólga er nú innan Sameinuðu þjóðanna, eins og víða um heiminn allan. Þá eru einnig uppi spurningar um framtíð Sameinuðu þjóðanna, þar sem Trump hefur dregið verulega úr fjárhagsstuðningi Bandaríkjanna við stofnunina alþjóðlegu. Trump ætlar samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs að ítreka hvernig hann gerði Bandaríkin öflugri og beitti þeim mætti til að takast á við langvarandi vandamál heimsins og endurskapa heiminn, Bandaríkjunum í hag. „Á meðan aðrir hafa talað, hef ég gripið til aðgerða. Á meðan aðrir hafa talað um frið, hef ég komið á friði. Á meðan aðrir hafa hunsað ógnir, hef ég staðið í hárinu á þeim. Á meðan aðrir tala um hugrekki, hafa Bandaríkin sýnt það. Á meðan aðrir hafa lofað styrk, hef ég notað hann til að gera Bandaríkin að voldugasta ríki heims,“ sagði Trump snemma í ræðu sinni. Hægt er að horfa á ræðu Trumps í spilaranum hér að neðan. Trump tekur til máls á eftir Luiz Inácio Lula da Silva, forseta Brasilíu. Þegar hann mætti til höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna fyrr í dag byrjaði hann á því að ræða stutt við blaðamenn og sagðist stoltur af því að ætla að ávarpa allsherjarþingið. Trump fór því næst að gagnrýna fjölmiðla og þá sérstaklega Kaitlan Collins, frá CNN. Það er einn fjölmiðlanna sem Trump hefur bannað frá Hvíta húsinu. „Það kemur mér á óvart að þú sért hér,“ sagði Trump við Collins. „Þú ættir ekki að vera hér. Þú ættir ekki að vera hér að fjalla um mig.“ Trump hefur áður beint spjótum sínum að Collins og skammaði hana til að mynda í febrúar fyrir að brosa ekki meira. Trump snaps at Kaitlan Collins on his way into the UN: "I'm surprised that CNN is here covering me. You shouldn't be here! You should not be here covering me. You said you weren't going to cover me. You shouldn't be covering me." pic.twitter.com/GVLeZqfGpB— Aaron Rupar (@atrupar) September 22, 2026
Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira