Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Andri Broddason skrifar 22. september 2026 07:01 Eiður Smári Guðjohnsen segir að það er gott að aðrir leikmenn Manchester City geta skorað þegar Erling Haaland lendir á slæmum degi. Samsett/Getty Manchester City situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga þegar fimm umferðir eru búnar. Erling Haaland hefur verið aðalmarkaskorari liðsins en fleiri leikmenn virðast vera að hjálpa honum með markaskorunina.
Manchester City vann sannfærandi 5-3 sigur á Sunderland um helgina þar sem fjórir leikmenn skoruðu mörk toppliðsins. Enzo Fernandez skoraði sitt fyrsta mark fyrir Manchester City með glæsilegri aukaspyrnu og voru sérfræðingar Sýn Sport sammála um að það væri lukkuskref fyrir Manchester City að fá fleiri markaskorara. Klippa: Messan: Markadreyfing Manchester City „Þetta er frábær spyrna [hjá Enzo Fernandez] en þú vilt ekki að markmaðurinn þinn leyfi þetta en hann er að taka áhættu með staðsetningunni sinni. En það eru fleiri að koma að mörkunum og taka þyngdina af herðum [Erling] Haaland,“ sagði Halldór Árnason, sérfræðingur Sýn Sport. Kjartan Atli Kjartansson stjórnaði þættinum og spurði Eið Smára Guðjohnsen hvort Manchester City væri líklegra til þess að vinna Englandsmeistaratitilinn ef fleiri en Haaland skora mörkin. „Þú vilt að mörkin dreifist yfir liðið, það er ekki hægt að treysta bara á einn mann. Þeir hafa, eins og á síðasta tímabili, þurft að treysta aðeins of mikið á Erling Haaland. Mörk úr öllum áttum er kærkomið fyrir þjálfara,“ sagði Eiður Smári en var ekki að búast við að það yrðu margir leikir þar sem Haaland væri ekki að skora. „Hann verður alltaf sjóðandi heitur, mun alltaf vera hættulegur og mun alltaf skora sín mörk. En segjum sem svo að hann eigi slæman dag, þá er gott að geta treyst á það að mörkin komi úr öðrum áttum.“ Umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Fótbolti Enski boltinn Manchester City Messan Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Sjá meira