Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar 21. september 2026 21:00 Eins og margoft hefur verið bent á ríkir sú sérstaða meðal íslensku þjóðarinnar, að fólk þar metur allt sem tengist fjármálum á jafnvægisvog verðtryggingar. Öll útgjöld, allur rekstur, öll töp og allur fjárhagslegur gróði er metinn á þessa sömu og einföldu vog. Nú er verðtryggingamælistikan sögð vera 5,4% - þ.e. mælikvarði yfirstandandi verðbólgu á Íslandi. Bankavextir munu víst vera orðnir 8%. Svo hljóða þeir vextir, sem bankar taka af viðskiptavinum sínum sem eru lánsþurfi. Gróði bankanna af lánastarfsemi sinni er svo talinn samsvara röskum fjórðungi af 8% heildarvaxtaálögum þeirra. Á þann gróða leggur ríkisvaldið nú bankaskatt. Að skattleggja gróða og tap. Og hvaðan kemur það fé, sem bankarnir hafa til ráðstöfunar til þess að veita öll sín lán? Að hluta til kemur það frá eigin fé bankanna – þeim fjármunum, sem þeir hafa hagnast á frá því bankarnir hrundu og töpuðu öllu sínu ásamt stórum hluta af fjármunum sinnar þjóðar í bankahruninu, sem svokallaðir útrásarvíkingar ollu en þeir voru tignaðir af stjórnvöldum fyrir hrunið (fyrirgefið mér - líka af forsetanum). Allur þorri fjármunanna, sem bankarnir lána viðskiptavinum sínum, kemur nú frá fólkinu í landinu, sem leggur fjármuni sína inn á bankareikninga fyrir bankana til þess að versla með. Fyrir þá greiðasemi borga bankarnir vexti þeim, sem lána þeim fé sitt, Vexti, sem munu vera talsvert lægri en sú verðbólgan, sem í skjóli bankanna þrífst. Út frá þjóðþekktum mælikvarða verðtryggingarinnar merkir það, að lánveitendur bankanna, fólkið í landinu, viðheldur ekki einu sinni óbreyttu verðgildi þess fjár, sem það felur bönkunum til varðveislu. Lánveitendur bankann, fólkið í landinu, tapar þar peningum. Fær ekki einu sinni á mælikvarða verðtryggingar óbreytt verðmæti þess,. sem inn var lagt á bankareikningana. Fólkið í landinu uppsker tap á fjármunum með því að afhenda fé sitt bönkum til varðveislu. Og svo kemur næsta vers. Ríkisvaldið leggur svo skatt á þá vexti, sem bankarnir greiða fólkinu í landinu fyrir afnot af fjármunum þess, sem bankarnir svo græða á. Þannig skattleggur ríkisvaldið bæði gróða og tap. Bæði gróði og tap eru skattstofnar ríkisins. Gróða bankanna – sem nemur röskum fjórðungi af 8% vaxtatekjum þeirra. Og tap eigenda bankareikninga, sem nemur álíka hárri prósentu af vaxtagreiðslum bankanna til þeissa – vaxtagreiðslum, sem leiða beint til tekjutaps. Hættulegur hugsunarháttur. Það er von, að reyndir fjármálamenn hafi lítið álit á verðtryggingahugsunarhætti íslensku þjóðarinnar. En svo lengi hefi ég verið undir þeim áhrifum minn langa lífsaldur að ég get varla hugsað utanvert við verðtryggingahugsunarháttinn – jafnvel þó hann leiði til þess, að ég komist að þeirri skelfilegu niðurstöðu, að bankarnir græði á að lána fólki annara manna fé, greiði lánveitendum sínum ekki jafnvirði þeirra fjármuna sem lánveitendur bankanna lánuðu þeim – og að ríkisvaldið noti sem skattstofn bæði gróðann – hjá bönkunum, og tapið – hjá fólkinu, sem lánar bönkunu fé. En svona fer hjá þeim öldruðu manneskjum, sem stunduðu nám undir aðgreiningu þar sem námsefni var veitt og numið eftir námsgetu, samræmd próf voru reglan í samanburði milli nemenda og skóla, börnin – meira að segja strákar - gátu lesið og lásu bækur . Sá tími er nú senn á enda runninn – og líklega verðtryggingahugsunarhátturin líka, Þá verður nú auðvelt að lifa. Og auðvelt að skattleggja. Þegar sömu skattlagningaraugum má líta bæði tap og gróða. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sighvatur Björgvinsson Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar