Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Aron Guðmundsson skrifar 21. september 2026 10:31 Aron Sigurðarson í baráttunni við Oliver Ekroth í leik KR og Víkings um helgina Vísir/Anton Brink Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, sér ekki eftir því að hafa talað digurbarkalega nú þegar að Víkingur Reykjavík hefur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Framherji Víkinga skaut á Aron á samfélagsmiðlum eftir að titillinn var í höfn. „
Þetta er þungt en þetta er bara bensín. Þótt tímabilið sé ekki búið þá erum við að fara reima á okkur skóna eftir sex mánuði keyra á þetta aftur,“ sagði Aron í viðtali við Val Pál Eiríksson á Sýn eftir að Víkingur hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn KR á Meistaravöllum. Klippa: „Sé ekki eftir neinu“ Aron, sem er fyrirliði KR og hefur jafnframt verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í ár, hafði farið mikinn í viðtölum á undanförnum vikum og fengið á sig skerf af gagnrýni fyrir sína framkomu. Í leik KR gegn Víkingum á dögunum, fyrir leik liðanna um helgina, sagði Aron meðal annars að Víkingar væru bensínlausir, haltrandi og á hælunum. Eitthvað sem fór þá ekki vel í Víkinga, þar með talið þjálfara liðsins Sölva Geir Ottsesen. Víkingar létu Aron finna fyrir því eftir leik liðanna á dögunum þar sem að varnarmaður liðsins, Oliver Ekroth hljóp heldur harkalega utan í Aron. Eftir sigur Víkinga um helgina, þar sem að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn, gerði Nikolaj Hansen, framherji Víkings Reykjavíkur, svo grín að Aroni á samfélagsmiðlum. Nikolaj Hansen birti þessa mynd á samfélagsmiðlum eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn.Skjáskot: Nikolaj Hansen á Instagram / Upphaflega birt á 433.is Hansen birti mynd af Aroni á samfélagsmiðlum, skot úr auglýsingu Unbroken, þar sem „unbroken“ hafði verið breytt í broken: „Brotinn“ Þessar yfirlýsingar hafa náttúrulega verið mikið í fjölmiðlum og bara í umræðunni. Sérðu eitthvað eftir þessu? „Nei ég sé ekkert eftir þessu,“ sagði Aron. „Mér leið svona eins og viðbrögð hjá fólki hafi verið á þá leið að reyna neyða mig í að sjá eftir þessu. Það eru átta stig á milli okkar þegar við gerum jafntefli hérna við þá í síðasta leik. Margir sögðu að mótið væri búið þá. Þú veist, ég var bara reyna kannski að berja trú í sjálfan mig og liðið mitt og liðin í kringum okkur sem eru að sem eru að keppa við þetta lið. Í næsta leik fara þeir fram og gera jafntefli. Fyrir það höfðu þeir unnið þá 5-0. Nei, ég sé ekki eftir neinu. Ég veit alveg hvað ég var að gera fyrir sjálfan mig og liðið mitt. Það bara sprakk í andlitið á mér og mér er alveg sama um það.“ Viðtalið við Aron í heild sinni má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Íslenski boltinn Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira