Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Aron Guðmundsson skrifar 21. september 2026 08:06 Huseklepp og Knutsen áttu snörp orðaskipti um rauða spjaldið sem Kristall fékk í gær Samsett mynd Aðstoðarþjálfari Brann kallaði þjálfara Bodo/Glimt barnalegan eftir snörp orðaskipti þeirra um rauða spjaldið sem Íslendingurinn Kristall Máni Ingason fékk í leik liðanna í gær. Kristall var rekinn af velli en hafði áður skorað það sem átti eftir að reynast sigurmark leiksins.
Leikur liðanna fór fram á heimavelli Brann og lauk með 2-1 sigri liðsins. Kristall Máni skoraði sigurmark leiksins á 68. mínútu en um tíu mínútum eftir það fékk Kristall að líta rauða spjaldið fyrir glæfralega tæklingu á Patrick Berg, fyrirliða Bodo/Glimt. Þjálfarateymi Brann lét fjórða dómara leiksins heyra það á hliðarlínunni eftir að hann lyfti rauða spjaldinu en aðstoðarþjálfari liðsins, Erik Huseklepp, viðurkenndi svo á blaðamannafundi eftir leik að rautt spjald hafi Kristall verðskuldað. Kjetli Knutsen, þjálfari Bodo/Glimt stóð hjá Huseklepp þegar að hann tjáði hug sinn um rauða spjaldið sem Kristall fékk og spurði því hvers vegna þjálfarateymi Brann hafi verið með þessi læti á hliðarlínunni er Kristall var rekinn af velli. „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ spurði Huseklepp þá á móti við litla hrifningu Knutsen. pic.twitter.com/FBT9GIhHTM— Ballspark (@Ballspark1) September 20, 2026 „Barnalegur? Það er ótrúlegt að þú látir hafa svona eftir þér. Það er fáránlegt,“ svaraði Knutsen og hélt svo áfram: „Þeir upplifa það ekki þarna og þá að þetta sé rautt spjald. Fyrirgefðu, en þá geturðu ekki verið hæfur sem sérfræðingur á TV 2,“ sagði Knutsen og skaut þar með á Huseklepp sem starfaði sem sérfræðingur um norska boltann hjá TV 2 áður en honum var boðið starf hjá Brann. „Sem betur fer fór þetta vel, en þetta er augljóst rautt spjald,“ bætti Knutsen svo við. „Þetta hefði getað orðið ljótt. Ég er sammála því að þetta hafi ekki verið ásetningur en þú verður að taka ábyrgð á því sjálfur.“ Sigurmark Kristals, sem og rauða spjaldið sem hann fékk, má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Kristall heldur nú heim til Íslands þar sem hann er hluti af íslenska landsliðinu sem á fyrir höndum mikilvægt verkefni í Þjóðadeild UEFA.
Norski boltinn Fótbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Union St.Gilloise - Real Sociedad | Orri mættur til Belgíu Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Sjá meira