Sport

Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra kepp­endur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steindi segist ætla vera enn að í myrkrinu.
Steindi segist ætla vera enn að í myrkrinu. vísir/viktor freyr

„Ég er bara góður sko,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson sem tekur í dag þátt í sínu fyrsta Bakgarðshlaupi í Heiðmörk sem fór af stað klukkan níu í morgun. Garpur Elísabetarson tók viðtal við hann á staðnum þegar hann kom í mark eftir fyrsta hring í morgun.

 Hann var rúmlega 54 mínútur með hann.

Bakið aðeins að stríða Steinda. Þorleifur fylgist vel með. vísir/viktor freyr

„Fyrsti hringurinn var bara fínn. Þetta var eiginlega bara planið að vera með fimm mínútur hér í hvíld. Ég gleymdi klukku og er búinn að vera að teika aðra keppendur og spyrja á hvaða hraða við erum en þetta gekk bara mjög vel. Líkaminn er bara góður og ég held að ég sé bara rétt að byrja. Ég mætti með höfuðljós og er að bíða eftir myrkrinu.“

Auðunn Blöndal og Egill Einarsson, samherjar hans í FM95BLÖ, eru mættir á svæðið til að styðja við bakið á sínum manni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×