Handbolti

Þor­steinn Leó frá í 8-12 vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorsteinn Leó ætti að ná HM í janúar. 
Þorsteinn Leó ætti að ná HM í janúar.  vísir /vilhelm

Landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson verður frá keppni í allt að tólf vikur eftir að hafa meiðst illa í leik með Porto gegn Veszprem í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Þorsteinn fékk samherja ofan á ökklann á sér í leiknum og sleit liðband í ökkla og einnig er rifa í sköflungs- og dálkbandi. Hann staðfestir í samtali við Vísi að hann verði frá í 8-12 vikur.

Þorsteinn var einnig tæpur fyrir síðasta stórmót í handbolta sem fram fór snemma árs en núna ætti hann aftur á móti að vera orðinn klár fyrir HM í Þýskalandi í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×