Hafnar því að hafa bolað sér inn á sjúkrastofu Eiður Þór Árnason skrifar 17. september 2026 19:07 Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í janúar þar sem hann lét formlega af ráðherraembætti. Inga tók við af honum sem mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Formaður Flokks fólksins, hafnar því að hafa „bolað sér inn“ á sjúkrastofu þar sem þáverandi mennta- og barnamálaráðherra lá á meðan hann jafnaði sig eftir hjartaaðgerð í desember. Upplifun hans sé gjörólík upplifun hennar og annarra í Flokki fólksins. „
Ég hringdi einu sinni í konuna hans hvernig hann hefði það og hvort að hann gæti tekið á móti gestum. Ég upplifi þetta ekki í neinu samhengi sem þarna kemur fram.“ Þetta sagði Inga Sæland í kvöldfréttum RÚV um yfirlýsingar Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra flokksins. Þau deila um það hvort hún hafi farið fram á að hann segði af sér ráðherraembætti eða það hafi verið hans eigin ákvörðun. „Það var ég sem skipaði hann í þetta embætti og það var hann sem sagði því af sér. Það er líka staðreynd.“ Hún hafnar því að hafa gert honum að hætta sem ráðherra. „Það er ekkert um sannleika að ræða, það er bara um upplifun. Ég er ekki að upplifa þessa hluti eins og Guðmundur Ingi Kristinsson gerir, engan veginn. Ég er bara ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans á þessum tímapunkti,“ sagði hún í kvöldfréttum RÚV. Inga segir afsögn Guðmundar úr flokknum sem hann tilkynnti í apríl hafa komið sér í opna skjöldu. „Hann upplifir hlutina öðruvísi en ég og hann nálgast hlutina öðruvísi en ég.“ Það sé ljóst að hann sé ósáttur við að gegna ekki lengur ráðherrastöðu. Hún sakni Guðmundar og vilji sjá hann aftur bera á sér merki Flokks fólksins. Guðmundur hefur greint frá því að Inga hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð í desember. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans til að segja honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Það gerði Guðmundur tólf dögum síðar og tilkynnti svo afsögn úr flokknum í apríl. Inga tók svo við af honum sem mennta- og barnamálaráðherra. Viljað komast inn á sjúkrastofuna á þriðja degi jóla Guðmundur segir að samtal Ingu við eiginkonu hans hafi orðið þess valdandi að hann ákvað að yfirgefa Flokk fólksins. „Það var samtal um að hún vildi koma inn á sjúkrastofuna og hitta mig vegna þess að henni fannst ég hafa verið allt of lengi frá, níu daga og þetta gengi ekki upp. Ég yrði bara að hætta sem ráðherra,“ segir Guðmundur í samtali við RÚV. Þetta hafi verið á þriðja degi jóla í fyrra og konan hans hafi neitað því að hleypa Ingu inn á sjúkrastofuna. Erindið mætti bíða þar til hann hefði verið útskrifaður. Kvaðst sjálfur hafa tekið ákvörðun um afsögn Guðmundur veitti takmarkaðar skýringar á afsögn sinni úr flokknum þegar greint var frá henni í apríl og vísaði í ótilgreindan persónulegan trúnaðarbrest sem varðaði persónuleg samskipti innan flokksins. Þegar hann tilkynnti brotthvarf úr ráðherrastól þann 8. janúar gaf hann til kynna að það hefði verið hans ákvörðun. „Að vandlega ígrunduðu máli hef ég ákveðið að segja af mér embætti mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Eins og fram hefur komið gekkst ég undir opna hjartaaðgerð fyrir jól og fram undan er nú bataferli,“ sagði Guðmundur í yfirlýsingu á þeim tíma. Inga Sæland hefur ekki gefið Vísi kost á viðtali í dag. Fréttin er í vinnslu.
Flokkur fólksins Tengdar fréttir Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra segir að formaður Flokks fólksins hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans til að segja honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Það gerði hann skömmu síðar og sagði sig í kjölfarið úr flokknum. 17. september 2026 16:45 Guðmundur Ingi segir af sér Guðmundur Ingi Kristinsson hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Hann mun halda áfram sem þingmaður Flokks fólksins. 8. janúar 2026 18:14 Guðmundur Ingi á sjúkrahúsi Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu embættisfærslur mennta- og barnamálaráðherra við upphaf þingfundar í morgun og lýstu áhyggjum af því hvernig hann hafi beitt sér í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Forseti þingsins benti á að málið varði ekki störf þingsins eða fundarstjórn forseta en upplýsti að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, væri á sjúkrahúsi og geti sökum þessa ekki verið viðstaddur umræður á Alþingi. Hann er ekki sagður alvarlega veikur. 4. desember 2025 10:44 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Hafnar því hafa bolað sér inn á sjúkrastofu Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Sjá meira
Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra segir að formaður Flokks fólksins hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans til að segja honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Það gerði hann skömmu síðar og sagði sig í kjölfarið úr flokknum. 17. september 2026 16:45
Guðmundur Ingi segir af sér Guðmundur Ingi Kristinsson hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Hann mun halda áfram sem þingmaður Flokks fólksins. 8. janúar 2026 18:14
Guðmundur Ingi á sjúkrahúsi Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu embættisfærslur mennta- og barnamálaráðherra við upphaf þingfundar í morgun og lýstu áhyggjum af því hvernig hann hafi beitt sér í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Forseti þingsins benti á að málið varði ekki störf þingsins eða fundarstjórn forseta en upplýsti að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, væri á sjúkrahúsi og geti sökum þessa ekki verið viðstaddur umræður á Alþingi. Hann er ekki sagður alvarlega veikur. 4. desember 2025 10:44